Fékk kökuboð og typpamyndir á einkamal.is Bjarki Ármannsson skrifar 20. ágúst 2014 15:20 Í gervi sínu var Þórarinn einstæð móðir á höfuðborgarsvæðinu. Vísir/Stefán/Skjáskot „
Ég hef svo gaman af netinu, þú veist aldrei hver er á hinum endanum. Þannig að ég bjó til svona ideal stelpu sem graðir karlar myndu vilja kynnast.“ Þetta segir Þórarinn Þórarinsson blaðamaður, sem síðastliðinn vetur stofnaði aðgang á stefnumótasíðunni einkamál.is og þóttist vera einhleyp kona á fertugsaldri. Hann sagði frá reynslu sinni í grein í tímaritinu MAN og í kjölfarið í Síðdegisútvarpi Rásar tvö. „Mér leiddist nú bara eitt kvöld í febrúar og ákvað í flippi að prufa þetta,“ segir Þórarinn. „Ég gerði mér bara upp feik gmail-aðgang og skráði mig inn á það.“Full-frontal myndir og kökuboð Í kvenmannsgervi sínu var Þórarinn 36 ára kona á höfuðborgarsvæðinu sem notaði aðgangsheitið smartgirl78. Í lýsingu skrifar „hún“:Hress og ákveðin einstæð móðir með háskólapróf. Skollitað, hrokkið, axlarsítt hár, blá augu, DD og í góðu formi. Er ekki að leita að langtímasambandi heldur skemmtilegum félagsskap á djammið, bíó, leikhús, og áhugavert spjall yfir góðum mat og vínum. Reyki ekki og hef engan áhuga á sveittum karlpungum, körlum sem hata konur eða perrum. Ég læt ekki nota mig en er til í að nota réttu mennina.Að sögn Þórarins létu viðbrögðin ekki á sér standa. „Þetta var fáránlega fyndið,“ segir hann. „Menn hikuðu ekki við að senda inn „full-frontal“ myndir, bara andlit og sprellinn út. Mjög uppteknir af því hvað þeir væru vel vaxnir niður og hvort ég vildi ekki kynna mér það nánar. Svo var allt frá því að bjóða mér í franska súkkulaðiköku yfir í tveggja blaðsíðna tígulgosafrásagnir af því hvernig átti að gæla við mig og fullnægja mér á allan mögulegan hátt. Ég get kannski ekki sett mig í spor kvenna en ég mér fannst þetta svona frekar subbulegt og fráhrindandi.“Meirihlutinn vildi vel Smartgirl78 er ekki sérstaklega virk á síðunni en Þórarinn segist aðeins hafa svarað um tveimur fyrirspurnum. Samt trekkir hún enn að sér áhugasama vonbiðla. „Skilaboðin skiptu hundruðum,“ segir Þórarinn. „Þetta var eitthvað um 500 síðast þegar ég skoðaði þetta.“ Einkamál.is hefur oft verið á milli tannanna á fólki og nú síðast lét stofnandi Facebook-hópsins Kúrufélagagrúbban þau ummæli falla í Fréttablaðinu að það væri almenn vitneskja að síðan væri „sölusíða fyrir vændi.“ Þórarinn segir hinsvegar að hann hafi aldrei fengið boð um greiðslu fyrir kynlíf og að meirihluti þeirra sem skrifuðu smartgirl78 hafi viljað henni vel. Prófíll Þórarins stendur enn óhreyfður á síðunni frá því í vetur þó hann sé löngu hættur að sinna honum. En hefur ekki komið til greina að hætta að draga menn á tálar og eyða aðganginum? „Ég er bara svo latur,“ segir hann. „Ég var eiginlega bara hættur að pæla í þessu.“
Mest lesið „Ég hef aldrei reynt að verða nokkur skapaður hlutur“ Tónlist Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi Lífið Inga Tinna og Logi greina frá kyni barnsins Lífið Lofar svakalegri veislu Tónlist Krakkatían: Níu líf, karfan og víkingar Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Heilmikil skemmtidagskrá og samsöngur á Þingvöllum í dag Lífið Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Lífið Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Lífið Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Lífið Fleiri fréttir Heilmikil skemmtidagskrá og samsöngur á Þingvöllum í dag Inga Tinna og Logi greina frá kyni barnsins Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi Krakkatían: Níu líf, karfan og víkingar Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Tólf klukkustunda gjörningur í Hörpu í dag Torfbærinn í Vesturbænum sem stóð fram á níunda áratuginn Bubbi hrærður: Trúir því að Níu líf muni á endanum vakna að nýju Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Arnar Þór selur Arnarneshöllina Á 90 þúsund servíettur í Hafnarfirði Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Einstakur Fender Telecaster í Hljóðfærahúsinu Fólk ferðist alla leið frá Ástralíu til að sækja Víkingahátíðina Tignarleg miðbæjaríbúð Helgu Ólafs til sölu Íslensk lopapeysa flutt milli heimsálfa vegna mestu eftirsjár ævinnar Breytti hænsnahúsi í verkstæði sitt Teknóhátíð á Radar alla helgina Enn neisti hjá Bad Bunny og Kendall Jenner Banjóleikari frá Nashville með Baggalúti og Sinfó Hugsar hlýtt til áranna í Los Angeles Aníta Briem og Hafþór eiga von á barni Selur húsið í Garðabæ eftir kaupin á glæsihúsi Ingu Lindar Sjö daga afmælissæla í Reykjanesbæ Þrjú hundruð börn reyna að dorga furðulegasta fiskinn Bara 33 ára og lífið á eftir að koma í ljós Daði keypti hús Jóns Jónssonar með mömmu sinni á yfirverði „Ég væri ekkert án þeirra“ Gekk í tvo tíma að flugvellinum til að komast hjá leigubílagjaldi Sjá meira