Starfsmenn Sports Direct fá 60-70 þúsund krónur í jólabónus Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. nóvember 2014 11:08 Sigurður Pálmi Sigurbjörnsson, framkvæmdastjóri Sports Direct á Íslandi.
Starfsfólk Sports Direct í Lindum í Kópavogi sem vann hjá versluninni á fyrstu fjórum mánuðum ársins, fær jólabónus með launum sínum nú um mánaðamótin. Launin eru greidd út í dag. Heildarbónusgreiðslur nema um tveimur milljónum króna og fær hver starfsmaður um 60-70 þúsund króna í bónus sem bætast við laun og desemberuppbót. „Með bónusgreiðslunum fær starfsfólk Sports Direct að njóta verðmætasköpunarinnar sem það átti hlutdeild í. Árangurinn skilar sér nú beint í launaumslagið,“ segir Sigurður Pálmi Sigurbjörnsson, framkvæmdastjóri Sports Direct á Íslandi. Starfsmenn Sports Direct hafa verið á bilinu 80-90 á árinu. Flestir þeirra eru starfsmenn í hlutastarfi á aldrinum 18-19 ára. Sports Direct skiptir bónusárinu upp í þrjár hluta og er nú verið að greiða fyrir fyrstu mánuði þessa rekstrarárs. Bónusarnir eru tengdir árangri starfsfólks Sports Direct í sölu, rýrnunarstjórnun og aga í launakostnaði segir í tilkynningu frá Sports Direct. Sigurður Pálmi bætir við að það starfsfólks Sports Direct sem standi sig vel fái með þessu móti meira borgað án þess að þurfa að biðja sérstaklega um það.Aukamánuður í launaumslaginu Bónusinn er mishár eftir stöðu og vinnuframlagi starfsmanna. Algengast er að hann jafngildi um 25% hækkun launa starfsfólks Sports Direct í jólamánuðinum. Í sumum tilvikum starfsmanna í hlutastarfi sem unnu á bónustímabilinu getur bónusgreiðslan jafngilt því að heil mánaðarlaun leynist í launaumslaginu. Starfsmenn í fullu starfi fá hærri bónusa en starfsfólk í hlutastarfi segir í tilkynningunni. Þar kemur einnig fram að bónusar í lok árs þekkist hjá sérverslunum þar sem laun eru almennt hærri en í stórverslunum. Því sé athyglisvert að verslun á borð við Sports Direct þakki starfsfólki sínu fyrir árangur í starfi á árinu með þessum hætti. Um 400 verslanir Sports Direct er að finna í Bretlandi og tvö hundruð annars staðar í heiminum.
Mest lesið Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Viðskipti innlent Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Viðskipti innlent Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent „Biðröðin er löng“ Viðskipti innlent Opið fyrir innsendingar í Lúðurinn 2025 Samstarf Fleiri fréttir Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Sjá meira