Reynir að vera ekki fáviti að tilefnislausu Ólöf Skaftadóttir skrifar 6. ágúst 2014 11:30 Villi segir Leiðinlega gaurinn vera hliðarsjálf, en segist sjálfur forðast allt leiðinlegt. Fréttablaðið/GVA „
Ég byrjaði með síðuna í lok árs 2010 af því mér fannst fyndið að vera með hliðarsjálf sem hefði allt á hornum sér og gæti drullað yfir allt og alla,“ segir Vilhjálmur Pétursson, betur þekktur sem Villi, þýðandi og maðurinn á bak við Facebook-síðuna Leiðinlegi gaurinn sem hefur tæplega 8.000 fylgjendur. Leiðinlegi gaurinn skrifar færslur og athugasemdir um málefni líðandi stundar þar sem hann hlífir engum og gerir óspart grín að mönnum og málefnum. „Ég hafði verið með moggablogg undir sama nafni þar sem ég bloggaði bara um leiðinlegar fréttir, af því moggabloggarar voru alger plága hérna fyrir nokkrum árum. Nú eru þeir allir komnir í kommentakerfin. Facebook gaf þessu grundvöll fyrir miklu betra grín. Facebook er svo þægilegur vettvangur fyrir svona lagað, þetta er eins og að skrifa örsögur og maður veit að nokkur þúsund manns munu lesa hana,“ útskýrir Villi sem segir síðuna grundvöll fyrir grín.tæplega 8.000 fylgjendur Leiðinlegi gaurinn er vinsæll á Facebook. MYND/SKJÁSKOT„Stundum beiti ég kaldhæðni og stundum meina ég hvert einasta orð. Hugmyndin í dag er allt önnur en hún var fyrst, þá var þetta eins og að hreyta ónotum í gangandi vegfarendur. Nú reyni ég að vera ekki bara alger fáviti að tilefnislausu, það eru yfirleitt einhver skilaboð á bak við þetta. Ég vona bara að leiðindin gleðji sem flesta,“ bætir hann við og hlær. Vilhjálmur hefur almennt fengið góð og mikil viðbrögð við færslunum. „Jú, ég hef fengið einhver hatursbréf en það er frekar skemmtilegt að tækla það. Ég get ekki sagt að ég hafi verið misskilinn, eða að ég hafi ekki verið misskilinn. Fólk má skilja þetta hvernig sem það vill. Það er ekki í mínum höndum.“En er Vilhjálmur sjálfur leiðinlegur? „Þar sem leiðinlegi gaurinn er hliðarsjálf er ég í raun aldrei leiðinlegi gaurinn. Ég vinn við að horfa á sjónvarpsþætti sem er geðveikt og þegar ég er ekki að vinna reyni ég að forðast allt sem er leiðinlegt og gera eitthvað skemmtilegt,“ segir hann að lokum.
Mest lesið „Kynlíf okkar hjóna hefur breyst mikið síðustu ár“ Lífið Stjörnulífið: Áslaug náði ekki að tala Trump til Lífið Stórt hlutverk og gefandi að vera stjúpforeldri þótt réttindin séu engin Áskorun „Ég er til í að gera allt svo ég þurfi ekki að grafa þriðja barnið mitt í viðbót“ Lífið Íþróttapar keypti einbýlishús í Hafnarfirði á 162 milljónir Lífið Auðunn Lúthersson selur austurbæjarperlu Lífið „Átti ekki efni á Icelandair til Tene en hér er ég“ Lífið Greipur telur Trump hafa ruglast á Grænlandi og Íslandi Lífið Spennandi nýjungar í íslensku konfekti Lífið samstarf „Við náðum að nýta hverja einustu stund með pabba“ Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Áslaug náði ekki að tala Trump til „Kynlíf okkar hjóna hefur breyst mikið síðustu ár“ Greipur telur Trump hafa ruglast á Grænlandi og Íslandi „Ég er til í að gera allt svo ég þurfi ekki að grafa þriðja barnið mitt í viðbót“ Krakkatía vikunnar: Fjöll, friðarsúlan og geimurinn Auðunn Lúthersson selur austurbæjarperlu Skautafjör á Laugarvatni í dag Fréttatía vikunnar: Bruni, Grænland og handbolti Íþróttapar keypti einbýlishús í Hafnarfirði á 162 milljónir Svona heldur Rakel sér unglegri Gugga í gúmmíbát og Patrekur Jaime í eina sæng „Átti ekki efni á Icelandair til Tene en hér er ég“ „Við náðum að nýta hverja einustu stund með pabba“ „Þessu hef ég verið háður býsna lengi“ Eigandi lúxushótels selur miðbæjarperlu Lúxusferðaforstjóri og kaupmaður selja í gamla Vesturbænum Þú færð ekki leikskólapláss en svona á að halda barnaafmæli Sólveig Anna greinir woke-ið Bergþór og Laufey selja slotið Svona sjá Pétur og Heiða leikskólavandann Eyddi kröfulistanum sem hann birti í gríni Rosalia komin með skvísu upp á arminn „Og leynigesturinn er enginn annar en…“ Inga Tinna selur höllina í Borgartúni Kiefer Sutherland handtekinn grunaður um líkamsárás Sjóðheit trend sem taka yfir á nýju ári Innflytjendamálin eru fíllinn í stofunni Júnía Lín komin í milljónaklúbbinn Skóli við rætur Vatnajökuls Faðir Dilberts allur Sjá meira