María kennir jóga í Yoga Shala, en hyggst kenna fjölskyldujóganámskeið ásamt jógakennaranum Ásu Sóleyju Svavarsdóttur í næstu viku.
,,Við Ása Sóley, jógakennari og vinkona mín, höfum tekið eftir því að mikið af vinum okkar og fjölskyldumeðlimum hafa ekki tíma til að koma í jógatíma þó að þau langi til þess, því að þau eru bundin heima með börnin sín, sérstaklega núna í sumarfríinu. Því datt okkur í hug að það væri góð hugmynd að þau gætu tekið börnin með sér og gert jóga saman," segir María.
,,Hugsunin að baki fjölskyldujóga er fyrst og fremst sú að foreldrar og börn geti átt gæðastund saman í gegn um leik, jóga og slökun. Tímarnir verða byggðir upp eins og krakkajógatímar. Við förum í leiki og jógastöðurnar verða léttar þannig að allir geti verið með."

,,Ég kynntist Ashtanga jóga þegar ég var í leiklistarnámi í London og hef stundað það af alvöru í sex ár. Ég iðkaði jóga hjá mörgum æðislegum kennurum í London," útskýrir María. ,,Síðan þegar ég flutti heim tók ég kennararéttindin hjá Ingibjörgu Stefánsdóttur í Yoga Shala og hef kennt þar síðan ég útskrifaðist fyrir rúmu ári síðan.
Ég fór síðan til New York og var í læri hjá flottum ashtanga kennara, Eddie Stern, í the Broome street Temple í nokkra mánuði" segir María sem er nýlega komin heim eftir dvöl sína í New York.
María segir jóga vera sér lífsnauðsynlegt. ,,Með reglulegri iðkun hef ég fundið gríðalega mikinn mun á mér bæði líkamlega og andlega. Ashtanga jóga er mjög krefjandi líkamlega og það reynir bæði á styrk, liðleika og þol. Andlega hjálpar það manni að finna hugarró og skerpa fókusinn sem er nauðsynlegt í nútíma samfélagi, enda er áreitið er mikið. Iðkunin hefur hjálpað mér mikið við að takast á við allskonar áskoranir í lífinu og svo er þetta bara svo gaman."
Fjölskyldujóganámskeiðið er fyrir börn á aldrinum 4-8 ára og foreldra þeirra. Námskeiðið byrjar mánudaginn 7. júlí og verður í tvær vikur á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum.
Nánari upplýsingar um námskeiðið er að finna hér.