Telja Reiknistofu bankanna hafa óeðlilega samkeppnisstöðu Stefán Árni Pálsson skrifar 17. nóvember 2014 09:56 Í tilkynningunni segir meðal annars að fjármálafyrirtæki sem séu hluthafar í RB hafi verið skylduð til þess að framkvæma útboð eða verðkönnun við kaup á upplýsingatækniþjónustu.
Samtök iðnaðarins hafa sent Samkeppniseftirlitinu erindi vegna óeðlilegrar samkeppnisstöðu Reiknistofu bankanna á upplýsingatæknimarkaði en þetta kemur fram í tilkynningu frá SI. Málið lýtur að meðferð virðisaukaskatts í sölu þjónustu og vöru og hvort útboðsskyldu fjármálafyrirtækja sem eru hluthafar í RB hafi verið sinnt. „Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins í máli um undanþágubeiðni vegna starfsemi RB og samruna við Teris árið 2012 var RB og hluthöfum fyrirtækisins sett ákveðin skilyrði til að tryggja að önnur upplýsingatæknifyrirtæki gætu boðið þjónustu sína í samkeppni við RB.“ Í tilkynningunni segir meðal annars að fjármálafyrirtæki sem séu hluthafar í RB hafi verið skylduð til þess að framkvæma útboð eða verðkönnun við kaup á upplýsingatækniþjónustu. „Auk þess átti að koma í veg fyrir að mismunandi skattaleg meðferð hefði áhrif á hverjir geti keppt um viðskipti við fjármálafyrirtækin en starfsemi RB hafði fram að þessu verið undanþegin virðisaukaskatti.“ Innan SI eru fjölmörg upplýsingatæknifyrirtæki sem eru í beinni samkeppni við RB. „Samtökunum hafa borist upplýsingar um að þrátt fyrir framangreind skilyrði Samkeppniseftirlitsins þurfi RB ekki að leggja virðisaukaskatt á útsenda reikninga líkt og önnur upplýsingatæknifyrirtæki hafa gert. Sé þetta raunin skekkir það samkeppnisstöðu á upplýsingatæknimarkaði verulega.“ Samtök iðnaðarins telja mikilvægt að meðferð virðisaukaskatts í sölu þjónustu og vöru á umræddum markaði sé á jafnréttisgrunni og að RB njóti í engu fyrri stöðu. „SI óska eftir að Samkeppniseftirlitið taki það til skoðunar auk þess að kanna hvort útboðs- eða verðkönnunarskyldu hafi verið sinnt sbr. fyrri tilmæli. Er mikilvægt að hafa í huga í þessu samhengi að 25% af veltu RB er fyrir utan eigendahópinn og fyrirtækið hefur boðað enn frekari markaðssókn.“
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Fleiri fréttir Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Sjá meira