Harmageddon

Reykjavíkurdætur frumsýna nýtt myndband á Vísi

Anna Tara skrifar
Loksins, loksins er komið nýtt myndband frá Reykjavíkurdætrum en internetið logaði þegar þær gáfu út sitt síðasta myndband „Reykjavíkurdætur í desember. Í þetta skiptið komu ellefu rappettur saman og sömdu þær hver sína texta við takt frá Gnusa Yones. Þar sem upptökuverið er lítið ákváðu þær að fara þangað í þremur hópum til að taka upp nýja lagið. Að lokum varð til lagið Fiesta.  

Helena Harsita Stefánsdóttir og Arnar Steinn Friðbjarnarson sáu um framleiðslu myndbandsins. Þar sem Reykjavíkurdætur eru orðnar fleiri munu þær héðan í frá skipta lögunum á milli sín og má því eiga von á fleiri lögum fljótlega frá rappettunum. Þeir sem vilja fylgjast nánar með Reykjavíkurdætrum geta gert það á facebook síðu þeirra hér.

Þegar Reykjavíkurdætur fara í viðtöl reyna spyrjendur oft að skapa til vandræða innan hópsins með engum árangri. Þvílík og önnur eins ást hefur varla sést í einum hópi. Þær hafa ávallt hvatt hverja aðra áfram og ætli það sé ekki lykillinn að þeim töfrum sem urðu til. Eitt er ljóst, konur eru konum bestar.

Reykjavíkurdætur er: (í þeirri röð sem þær birtast í myndbandinu)

Valdis Steinarsdóttir

Jóhanna Rakel Jónasdóttir

Salka Valsdóttir

Þórdís Björk Þorfinnsdóttir

Ásthildur Sigurðardóttir

Steinunn Jónsdóttir

Sigurlaug Sara Gunnarsdóttir

Solveig Pálsdóttir

Bergþóra Einarsdóttir

Anna Tara Andrésdóttir

Tinna Sverrisdóttir








×