Forstjóri Olís verður starfsmaður á plani Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. desember 2014 11:18 Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olís, og Jón Svanberg Hjartarson, framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar, munu dæla eldsneyti á bifreiðar viðskiptavina Olís á afgreiðslustöð félagsins í Álfheimum í dag.
Á undanförnum vikum og mánuðum hefur mætt mikið á björgunarsveitum landsins og kostnaður vegna útkalla veriðverulegur. Af þessu tilefni og í anda samstarfssamnings hefur Olís ákveðið að í dag og á morgun (29. og 30. desember) renni 5 krónur af hverjum lítra til Slysavarnafélagsins Landsbjargar þegar keypt er bensín eða dísel hjá Olís eða ÓB. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Olís. Landsmönnum gefist þannig tækifæri til að styrkja Slysavarnafélagið Landsbjörg með því að dæla krónum inn á reikning samtakanna um leið og dælt er á bílinn. Olíuverzlun Íslands hf er einn af aðalstyrktaraðilum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og hefur undanfarin fjögur ár styrkt samtökin um rúmlega 20 milljónir króna að því er segir í tilkynningunni. „Við erum afar stolt og ánægð að styðja við bakið á Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Samtökin hafa innan sinna raða þúsundir sjálfboðaliða sem vinna ómetanlegt starf og eru alltaf til staðar í hvaða veðrum og aðstæðum sem er og koma öðrum til bjargar á ögurstundu. Við vonum að landsmenn verði til taks fyrir Slysavarnafélagið Landsbjörg í dag og á morgun og sýni þeim stuðning,” segir Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olís. Hann stendur sjálfur þjónustuvaktina í dag ásamt Jóni Svanberg Hjartarsyni, framkvæmdastjóra Slysavarnafélagsins Landsbjargar, og munu þeir dæla eldsneyti á bifreiðar viðskiptavina á afgreiðslustöð félagsins í Álfheimum. „Olís hefur um árabil verið mikilvægur samstarfsaðili Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem einn af aðalstyrktaraðilum samtakanna og hefur styrkt þau með fjárframlögum og veglegum afslætti af eldsneyti og öðrum vörum. Þá hefur Olís boðið upp á sérstaka neyðaraðstoð og eru tilbúnir að opna afgreiðslustöðvar sínar að kvöld- og næturlagi ef björgunaraðgerðir eru í gangi til að björgunarsveitir hafi aðgang að eldsneyti og öðrum búnaði á öllum tímum sólarhringsins. Olís leggur þannig lóð sitt á vogarskálarnar svo leitar- og björgunarstörf gangi sem best að nóttu sem degi og fyrir það erum við afskaplega þakklát. Stuðningur Olís hefur verið afar mikilvægur fyrir Slysavarnafélagið Landsbjörg enda byggist allt leitar- og björgunarstarf félagins á sjálfboðaliðastarfi þeirra sem það stunda. Öflugur stuðningur fyrirtækja og almennings ræður því hreinlega úrslitum þegar kemur að leit og björgun á Íslandi,” segir Jón Svanberg Hjartarson, framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Mest lesið Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Fleiri fréttir „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Sjá meira