Laun hækkuðu um 1,4% frá fyrri ársfjórðungi Stefán Árni Pálsson skrifar 12. desember 2014 09:03 vísir/vilhelm
Regluleg laun voru að meðaltali 1,4% hærri á þriðja ársfjórðungi 2014 en á ársfjórðungnum á undan en þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofu Íslands. Frá fyrra ári hækkuðu laun um 6,3% að meðaltali, hækkunin var 5,9% á almennum vinnumarkaði og 7,6% hjá opinberum starfsmönnum. Þar af hækkuðu laun ríkisstarfsmanna um 6,8% en 8,4% hjá starfsmönnum sveitarfélaga.Laun á almennum vinnumarkaði eftir atvinnugrein og starfsstétt Frá fyrri ársfjórðungi mældist hækkun reglulegra launa mest í samgöngum eða um 1,7%. Þá hækkuðu laun milli ársfjórðunga um 1,1% í byggingarstarfsemi, 1,0% í fjármálaþjónustu, 0,3% í verslun og 0,1% í iðnaði. Frá fyrra ári hækkuðu laun mest í byggingarstarfsemi eða um 7,9% en minnst í iðnaði eða um 4,3%. Frá fyrri ársfjórðungi var hækkun reglulegra launa eftir starfsstéttum á bilinu 0,1% til 1,1%. Laun skrifstofufólks hækkuðu mest en laun verkafólks minnst. Frá fyrra ári hækkuðu laun þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólks mest eða um 6,9% en laun verkafólks minnst eða um 5,2%. Á sama tíma hækkuðu regluleg laun tækna og sérmenntaðs starfsfólks um 6,3%, skrifstofufólks um 6,2%, sérfræðinga um 6,1%, iðnaðarmanna um 5,5% og stjórnenda um 5,3%. Kjarasamningar Í vísitölu launa á þriðja ársfjórðungi 2014 gætir áhrifa kjarasamnings ríkis við háskóla- og framhaldsskólakennara annars vegar og sveitarfélaga við grunnskóla- og leikskólakennara hins vegar sem undirritaðir voru á fyrri hluta árs 2014. Þá gætir áhrifa kjarasamninga fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd ríkissjóðs og Sambands íslenskra sveitarfélaga við nokkur stéttarfélög opinberra starfsmanna sem undirritaðir voru á öðrum ársfjórðungi 2014.mynd/hagstofan
Mest lesið Play er gjaldþrota Viðskipti innlent Þetta eru réttindi þeirra sem eiga bókað með Play Neytendur Kveðjubréf Einars forstjóra til starfsfólks Viðskipti innlent Farþegar Play í Keflavík klóra sér í kollinum Viðskipti innlent „Við erum ekki með öll eggin í sömu körfu“ Viðskipti innlent „Hver fyrir sig hvað það varðar“ Viðskipti innlent Fargjöld ekki hækkuð af ásettu ráði Viðskipti innlent Samgöngustofa fundaði nýlega með Play og fékk gögn frá KPMG Viðskipti innlent „Höfum aldrei þurft að hugsa um þetta áður“ Atvinnulíf Norðlensk framleiðsla sem er að slá í gegn á Íslandi Samstarf Fleiri fréttir Fargjöld ekki hækkuð af ásettu ráði Samgöngustofa fundaði nýlega með Play og fékk gögn frá KPMG „Við erum ekki með öll eggin í sömu körfu“ „Hver fyrir sig hvað það varðar“ Farþegar Play í Keflavík klóra sér í kollinum Ráðin sölu- og markaðsstjóri hjá Alfreð Kveðjubréf Einars forstjóra til starfsfólks Play er gjaldþrota Bein útsending: Staða aðfluttra á húsnæðismarkaði Spennandi tími til að opna nýjan fjölmiðill Lífsverk og Almenni lífeyrissjóðurinn í eina sæng Lagning gjaldþrota Fyrrverandi bankastjóri nýr forstjóri Thor landeldis Edda María leiðir stafræna markaðsþjónustu Vettvangs Uppsagnir hjá Fjársýslunni Guðný ráðin fræðslustjóri og Kristófer Orri í gjaldeyrismiðlun Kostaði tvo milljarða að selja Íslandsbanka Verðbólgan 4,1% og fer upp á milli mánaða Bein útsending: Framsýn forysta Opnar stað í anda Kaffi Vest í Fossvoginum Neyslan mikil og sjá ekki að stýrivextir fari hratt lækkandi Sexfölduðu veltuna á einu ári Gjaldeyrisforðinn nálægt billjón króna Rúna nýr innkaupastjóri Banana Úr geimskipaútgerð til Faxaflóahafna Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Selur Alvogen í Bandaríkjunum með samruna sem skapar risa á lyfjamarkaði Óvissa á alþjóðavettvangi undirstrikar mikilvægi ríflegs gjaldeyrisforða SVEIT muni afhenda öll gögn og ekki greiða dagsektir SVEIT sleppi ekki við milljónasektir Sjá meira