HS Orka kaupir hlut í Vesturverki Stefán Árni Pálsson skrifar 16. desember 2014 13:24 Með samningnum gerist HS Orka meirihlutaeigandi í Vesturverki. mynd/aðsend
HS Orka hefur keypt hlut í orkufyrirtækinu Vesturverki sem vinnur að virkjun Hvalár í Ófeigsfirði á Ströndum en þetta kemur fram í tilkynningu frá HS Orku. Með samningnum gerist HS Orka meirihlutaeigandi í Vesturverki. Samningurinn gerir Vesturverki kleift að vinna áfram að rannsóknum og þróun virkjunarinnar í Hvalá. Hvalárvirkjun er í nýtingarflokki rammaáætlunar ríkisstjórnarinnar um nýtingu orkuauðlinda Íslands sem og á aðalskipulagi Árneshrepps. Áætluð stærð Hvalárvirkjunar er um 50 MW og orkugeta upp á 320 GWh á ári. Með tengingu til Ísafjarðar er Hvalárvirkjun talin sá virkjunarkostur á Vestfjörðum sem tryggir orkuöryggi Vestfirðinga hvað best. „Samningurinn við HS Orku gerir okkur kleift að halda áfram rannsóknum og þróun Hvalárvirkjunar. Virkjunin mun hafa víðtæk og verulega jákvæð áhrif á atvinnulíf á Vestfjörðum,“ segir Gunnar Gaukur Magnússon, framkvæmdastjóri Vesturverks. Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku, tekur í sama streng. „Orkuöryggi á Vestfjörðum hefur verið eitt helsta baráttumál íbúa þar um langt skeið enda hafa orkumál staðið atvinnulífinu fyrir þrifum. Við hjá HS Orku þekkjum það af eigin reynslu frá Suðurnesjum hvað orkuöryggi skiptir miklu máli og við finnum fyrir miklum stuðningi íbúa og sveitarfélaga á Vestfjörðum varðandi framgang verkefnisins.“ HS Orka er rótgróið orkufyrirtæki og fagnar 40 ára afmæli á næstunni. Fyrirtækið á og rekur tvær jarðvarmavirkjanir; á Reykjanesi og í Svartsengi. Orkuverin þar hafa leitt af sér aðra fjölþætta starfsemi og nýsköpun; svo sem Bláa lónið, snyrtivöruframleiðslu, fiskeldi og svo mætti lengi telja.
Mest lesið Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Fleiri fréttir Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Sjá meira