RÚV fær lengri greiðslufrest Jón Hákon Halldórsson skrifar 19. desember 2014 00:28 Hugsanlegt er að Útvarpshúsið verði selt. vísir/gva
Samkomulag hefur náðst milli RÚV og Lífeyrissjóðs starfsmanna ríksins, sem er eigandi að skuldabréfi í 1. flokki 2000, um framlengingu á fresti á greiðslu skuldabréfsins til 31. mars næstkomandi. þann 1. október síðastliðinn hafði verið samið um að fresturinn næði til 31. desember. Í tilkynningu til Kauphallar segir að erfið fjárhagsstaða RÚV valdi því að ekki er bolmagn til að greiða afborgunina, en hún er að upphæð um 190 milljónir króna. Þar að auki er samkomulag um að kröfuhafar beiti ekki vanefndaúrræðum af þessu tilefni og að ekki verði gengið að eignum félagsins á þessu tímabili. Frestunin mun því ekki hafa áhrif á kjör skuldabréfsins og mun sú fjárhæð sem frestast bera sömu kjör og skuldabréfið þennan tíma og ekki hafa í för með sér kostnað í formi dráttarvaxta eða vanskilagjalda. „Stjórn RÚV vinnur nú að undirbúningi á sölu eigna félagsins með það að markmiði að minnka skuldsetningu félagsins. Stjórn RÚV tók ákvörðun á stjórnarfundi sínum þann 18. desember 2014 að hefja formlegt sölu- og skipulagsferli lóðarinnar að Efstaleiti 1 en borgarráð samþykkti á fundi í október að hefja vinnu með RÚV með það að markmiði að endurskipuleggja svæðið, m.a. fyrir íbúðabyggð,‟ segir í tilkynningunni. Þá segir að Ríkisútvarpið hafi jafnframt til skoðunar frekari aðgerðir til þess að tryggja rekstrarhæfi félagsins, þar á meðal hugsanlega sölu Útvarpshússins. Unnið verðurr að þeim aðgerðum í samráði við stjórnvöld.
Mest lesið Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Túnfisksævintýri Íslendinga endar með ósköpum Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira