„Kannski verður þetta einhverjum víti til varnaðar“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 5. desember 2014 12:00 Sigmar Vilhjálmsson fór fyrir eigendahópi sjónvarpsstöðvarinnar Miklagarðs. „
Ég mun fjalla um nýsköpunarverkefnið mitt, sjónvarpsstöðina Miklagarð og hvað fór úrskeiðis þar. Ég ætla að deila með ráðstefnugestum hvað ég tel mig hafa lært af þessu. Kannski verður þetta einhverjum víti til varnaðar,“ segir Sigmar Vilhjálmsson aðspurður um fyrirlestur sem hann heldur næstkomandi mánudag á viðburði ÍMARK sem ber yfirskriftina Hvað klikkaði? Fyrirlestur Sigmars heitir „Hvað var ég að pæla?“ og segist hann þar ætla að stikla á stóru í sögu sjónvarpsstöðvarinnar Miklagarðs en hann fór fyrir hópi eiganda stöðvarinnar. Rúmum mánuði eftir að stöðin hóf útsendingar leituðu eigendurnir að nýju hlutafé til að styrkja reksturinn en á sama tíma var öllum starfsmönnum stöðvarinnar sagt upp störfum. Síðar tóku 365 miðlar yfir allt hlutaféð í Miklagarði, lögðu stöðina niður en reka áfram stöðina Bravó sem kom í stað Popp Tíví. Aðrir fyrirlesarar á Hvað klikkaði? verða Þorvaldur Sverrisson, stefnumótunarstjóri á auglýsingastofunni Jónsson & Le'macks, Birna Ósk Einarsdóttir, framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs hjá Símanum, Sigtryggur Baldursson, framkvæmdastjóri ÚTÓN og Gísli Brynjólfsson, framkvæmdastjóri Hvíta hússins. Fundarstjóri verður Þóra Tómasdóttir, stofnandi Festival of Failure sem er óður til hugmynda og vettvangur fyrir ógleymanleg mistök.
Mest lesið Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Borgar sig að leyfa fólki að borga það sem það vill Viðskipti innlent Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Flug á sex þúsund krónur: easyJet tvöfaldar umsvif sín hérlendis Viðskipti innlent Stofnuðu nýtt félag þegar þeir sáu í hvað stefndi hjá Capacent Viðskipti innlent Innkalla kerti vegna eldhættu Neytendur Fordæmalaus skortur á skötu Neytendur Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Fleiri fréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent