Sport

Væri að spila í NFL-deildinni ef ég væri ekki hommi

Sam þegar hann æfði með St. Louis Rams.
Sam þegar hann æfði með St. Louis Rams. vísir/getty
Hinn samkynhneigði Michael Sam segir að það hafi lítið með hæfileika sína að gera að hann sé ekki að spila í NFL-deildinni.

Sam stóð sig frábærlega sem varnarmaður í háskólaboltanum og hann ákvað svo að koma út úr skápnum áður nýliðavalið fór fram í NFL-deildinni.

Ekkert félag í deildinni var til í að velja hann í liðið þá. Hann fékk þó tækifæri í vetur í æfingahópum St. Louis og Dallas. Hvorugt liðið samdi þó við hann.

„Ég var besti varnarmaðurinn í SEC-deildinni í fyrra þannig að það hefur greinilega ekkert með hæfileikana að gera að ég sé ekki að spila í NFL-deildinni," sagði Sam.

Hann neitar þó að gefast upp og ætlar að leggja áfram hart að sér í von um að komast að í deildinni.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×