Hagnaður Landsbankans dregst saman Haraldur Guðmundsson skrifar 15. maí 2014 18:29 Landsbankinn greiddi 20 milljarða króna í arð til hluthafa á fyrstu þremur mánuðum ársins. Vísir/GVA
Landsbankinn hagnaðist um 4,3 milljarða króna á fyrstu þremur mánuðum ársins. Á sama tímabili í fyrra var afkoman jákvæð um tæpa 8 milljarða. Í tilkynningu bankans um uppgjör fyrsta ársfjórðungs segir að lækkun á hagnaði skýrist fyrst og fremst af lækkun á vaxtamun, lækkun tekna eigna sem færðar voru á markaðsvirði og hærri sköttum. Bankinn hafi greitt tæplega 20 milljarða króna í arð til eigenda á ársfjórðungnum. Þrátt fyrir það sé eiginfjárstaðan afar sterk og eiginfjárhlutfallið langt yfir kröfum eftirlitsaðila,“ segir í tilkynningunni. Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, segir afkomuna viðunandi í ljósi þess að vaxtamunur hafi lækkað töluvert og verðþróun á markaði verið óhagstæð. „Bankinn greiddi myndarlegan arð til hluthafa í mars en heldur samt sem áður sterkri eigin- og lausafjárstöðu. Samfara batnandi efnahag hefur áfram dregið úr vanskilum. Markaðshlutdeild bankans á einstaklingsmarkaði hefur ekki áður mælst jafn há og nú og eins og sjá má m.a. af opnun nýrrar Fyrirtækjamiðstöðvar í Borgartúni nú í apríl, er stöðugt verið að leita leiða til að sinna þjónustu við viðskiptavini með hagkvæmari hætti en áður. Við erum bjartsýn á horfur í rekstri bankans á árinu og áfram verður unnið að hagræðingu,“ segir Steinþór.
Mest lesið Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira