Viðskipti innlent

Hagnaður Landsbankans dregst saman

Haraldur Guðmundsson skrifar
Landsbankinn greiddi 20 milljarða króna í arð til hluthafa á fyrstu þremur mánuðum ársins.
Landsbankinn greiddi 20 milljarða króna í arð til hluthafa á fyrstu þremur mánuðum ársins. Vísir/GVA
Landsbankinn hagnaðist um 4,3 milljarða króna á fyrstu þremur mánuðum ársins. Á sama tímabili í fyrra var afkoman jákvæð um tæpa 8 milljarða. 

Í tilkynningu bankans um uppgjör fyrsta ársfjórðungs segir að lækkun á hagnaði skýrist fyrst og fremst af lækkun á vaxtamun, lækkun tekna eigna sem færðar voru á markaðsvirði og hærri sköttum. Bankinn hafi greitt tæplega 20 milljarða króna í arð til eigenda á ársfjórðungnum. Þrátt fyrir það sé eiginfjárstaðan afar sterk og eiginfjárhlutfallið langt yfir kröfum eftirlitsaðila,“ segir í tilkynningunni.

Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, segir afkomuna viðunandi í ljósi þess að vaxtamunur hafi lækkað töluvert og verðþróun á markaði verið óhagstæð. 

Bankinn greiddi myndarlegan arð til hluthafa í mars en heldur samt sem áður sterkri eigin- og lausafjárstöðu. Samfara batnandi efnahag hefur áfram dregið úr vanskilum. Markaðshlutdeild bankans á einstaklingsmarkaði hefur ekki áður mælst jafn há og nú og eins og sjá má m.a. af opnun nýrrar Fyrirtækjamiðstöðvar í Borgartúni nú í apríl, er stöðugt verið að leita leiða til að sinna þjónustu við viðskiptavini með hagkvæmari hætti en áður. Við erum bjartsýn á horfur í rekstri bankans á árinu og

áfram verður unnið að hagræðingu,“ segir Steinþór. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×