Svipmynd Markaðarins: Vann hjá GlaxoSmithKline í London 24. nóvember 2014 09:28 Guðrún hefur starfað í lyfjageiranum í sautján ár. Vísir/Valli „
Við ætlum nú að tala við fjárfesta og safna fjármagni svo við getum unnið að fyrirliggjandi verkefnum,“ segir Guðrún M. Ásgrímsdóttir, framkvæmdastjóri sprotafyrirtækisins Lipid Pharmaceuticals (LP) sem hefur þróað lyf til meðhöndlunar á börnum og fullorðnum sem þjást af hægðatregðu. Áform LP gera ráð fyrir að lyfið verði komið á markað innan þriggja ára en Guðrún vinnur nú að hlutafjáraukningu fyrirtækisins. „Við erum komin langt með þessar rannsóknir en þurfum að klára ákveðna þætti í þeim til að fá lyfið skráð.“ Guðrún hefur starfað hjá LP frá árinu 2010 og í lyfjageiranum frá 1997. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1990. Eftir það fór hún á námsstyrk til Bandaríkjanna þar sem hún lærði við Valdosta State University í Georgia í Bandaríkjunum í eitt ár. „Eftir það kom ég aftur til Íslands og kláraði lyfjafræðina árið 1997 en námið hét þá lyfjafræði lyfsala og er í dag það sama og meistarapróf í lyfjafræði,“ segir Guðrún. Hún starfaði hjá fyrirtækinu Omega Pharma frá 1997 til 2000. Eftir það var hún ráðin til eins stærsta lyfjafyrirtækis heims, GlaxoSmithKline, og vann á rannsóknarstofu fyrirtækisins í úthverfi London. „Þar var ég í eitt ár og svo var ég að vinna á spítala í London sem klínískur lyfjafræðingur og kláraði diplómapróf í klínískri lyfjafræði við University of London. Árið 2005 byrjaði ég svo að vinna hjá GlaxoSmithKline á Íslandi við sölu- og markaðsmál og var þar þangað til ég hóf störf hjá LP.“ Guðrún er í sambúð með Sigurði Herði Kristjánssyni skipstjóra og þau eiga tvær dætur, sjö og fjórtán ára. „Veturnir snúast um að fara á skíði og svo reyni ég að komast í líkamsrækt og í göngur á sumrin. Svo sit ég heima og prjóna þegar ég hef tíma til þess en starfið og barnauppeldið tekur mest af mínum tíma,“ segir Guðrún. „Svo er fram undan að undirbúa aðventuna og jólin og einnig að sinna öðrum verkefnum LP eins og þróun nýs smyrsls sem við erum með í pípunum.“Katrín PétursdóttirKatrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis „Guðrún er sérlega atorkumikil manneskja og hefur mikinn áhuga á viðfangsefninu hverju sinni. Hún er ósérhlífin þegar kemur að því að koma hlutunum í verk, gerir það sem þarf að gera þegar þess þarf. Ég hitti hana á stjórnarfundi Lipid Pharmaceuticals um daginn og þá var hún að segja mér af miklum eldmóði að hún væri að fara austur fyrir fjall til að hitta dýralækna og kanna möguleika á notkun á lýsiskremi fyrir júgur á kúm vegna ástigssára. Já, það þarf líka að huga að blessuðum skepnunum og drífa sig þá bara austur. Ég kann nú bara ekki að segja frá neinum göllum í hennar fari enda ekki orðið vör við neina. Guðrún er bara toppmanneskja.“Þór SigfússonÞór Sigfússon, framkvæmdastjóri Íslenska sjávarklasans „Hún er einn af þessum frumkvöðlum sem nýi sjávarútvegurinn þarf á að halda. Hún er eldklár og með metnað til að gera t.d. omega-lyf og heilsuefni úr fiskinum okkar. Þannig getum við margfaldað verðmæti sjávarafurða okkar. Hún er fylgin sér og vinnur vel í teymi. Við vorum í Boston að kynna nokkur framúrskarandi íslensk líftæknifyrirtæki í síðasta mánuði, þar á meðal Lipid Pharmaceuticals og Codland. Þarna stóðu upp m.a. Guðrún fyrir Lipid og Erla Ósk Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Codlands, og kynntu fyrirtæki sín. Maður gat ekki annað en fyllst stolti að eiga svona flotta fulltrúa nýja sjávarútvegsins.“
Mest lesið Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Borgar sig að leyfa fólki að borga það sem það vill Viðskipti innlent Flug á sex þúsund krónur: easyJet tvöfaldar umsvif sín hérlendis Viðskipti innlent Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Stofnuðu nýtt félag þegar þeir sáu í hvað stefndi hjá Capacent Viðskipti innlent Fordæmalaus skortur á skötu Neytendur Innkalla kerti vegna eldhættu Neytendur Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Fleiri fréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent