Dósirnar líkar: Ætlaði að kaupa Tuborg en keypti Thule Kjartan Atli Kjartansson skrifar 17. nóvember 2014 16:27 Dósirnar eru báðar bláar og með snjókornum á.
Líkindi jólabjórsins frá Thule og Tuborg hefur vakið athygli margra. Dósirnar eru báðar bláar með snjókornum á. Á báðum eru teiknimyndir sem einhverjum þykja vera í svipuðum stíl. Meðal annars hefur þetta verið rætt í Facebook-hópnum Markaðsnördar. Einn sem tjáði sig þar var Andri Daði Aðalsteinsson, sem sagði frá því að hann hafði keypt Thule fyrir mistök; hann hafi ætlað sér að kaupa Tuborg. Í samtali við Vísi segir Andri frá því að það var í raun eiginkona hans sem benti honum á hvaða bjór hann var að drekka.Var búinn að drekka tvo „Ég var meira að segja búinn að drekka tvo bjóra áður en konan benti mér á þetta,“ segir Andri og hlær. „Ég ætlaði að kaupa mér Tuborg og gerði mér bara enga grein fyrir því að ég væri með Thule. Ég pældi reyndar í því að mér þótti bragðið heldur skrýtið. En maður drekkur jólabjórinn bara einu sinni á ári, þannig að ég hélt að ég hefði bara verið búinn að gleyma bragðinu.“ Andri bað svo konu sína að setja bjór fyrir sig inn í ískáp. „Já, ég bað hana að setja einn Tuborg inn í ískáp. Hún sagði mér að þetta væri Thule og ég sagði við hana að þetta væri sko Tuborg. Þegar hún sýndi mér dósina rann þetta upp fyrir mér, ég var að drekka Thule.“ Andri var búsettur í Danmörku og segir það hafa verið mikla upplifun þegar jólabjórinn kom í búðir. „Já, þetta var alltaf vel auglýst og manni fannst þetta alltaf rosalega gaman. Þeir voru með bílalest sem þeir keyrðu um og gáfu bjóra og alls konar varning. Það var mikil stemning í kringum þetta.“ Andri segist næst ætla að kaupa sér Tuborg, þegar hann verslar jólabjór. „Thule bjórinn var samt rosalega góður. Alveg þrælgóður. En næst er það Tuborg. En annars er mjög ánægjulegt hvað það er mikið úrval af jólabjór. Þetta er frábært fyrir áhugamenn um bjór.“
Mest lesið Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Túnfisksævintýri Íslendinga endar með ósköpum Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira