Breytingar á skipuriti Íslandsbanka Stefán Árni Pálsson skrifar 18. nóvember 2014 11:35 Sveinbjörn, Katrín og Hrafn. vísir/vilhelm/aðsend
Sveinbjörn Sveinbjörnsson hefur verið ráðinn forstöðumaður Einkabankaþjónustu VÍB – Eignastýringarsviði Íslandsbanka. Hann hefur starfað hjá Íslandsbanka í 11 ár, þar af síðastliðin 6 ár hjá Einkabankaþjónustunni en áður hjá Markaðsviðskiptum í verðbréfamiðlun. Sveinbjörn er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og með próf í verðbréfaviðskiptum. Katrín Oddsdóttir, sem hefur stýrt Einkabankaþjónustu VÍB frá hausti 2008, hefur nú tekið við nýrri deild, Viðskiptaþróun. Deildin mun leggja áherslu á vöruþróun. Katrín hefur átt farsælan feril hjá Íslandsbanka síðastliðin 16 ár en hún var áður hjá Markaðsviðskiptum í gjaldeyrismiðlun. Hún er hagfræðingur að mennt frá Háskóla Íslands og með próf í verðbréfaviðskiptum. Ný deild viðskiptaþróunar er liður í breytingum sem hafa verið gerðar á skipulagi VÍB. Markmiðið með breytingunum er að auka áherslu á vöruþróun og sölu- og þjónustumál. Tryggja á að VÍB bjóði bæði núverandi og tilvonandi viðskiptavinum sínum þær vörur og þjónustu sem þörf er fyrir hverju sinni. Sem liður í þessum breytingum þá mun VÍB Fjárfestingar sjá um að ávaxta fjármuni viðskiptavina með eignastýringarsamning við VÍB. Deildin var áður innan Íslandssjóða og forstöðumaður VÍB Fjárfestinga er sem áður Hrafn Árnason. Hann hefur 17 ára reynslu af eignastýringu og fjármálamörkuðum og er með MBA gráðu frá University of Edinburgh, cand.oecon gráðu í fjármálum frá Háskóla Íslands og próf í verðbréfaviðskiptum.
Mest lesið Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Borgar sig að leyfa fólki að borga það sem það vill Viðskipti innlent Flug á sex þúsund krónur: easyJet tvöfaldar umsvif sín hérlendis Viðskipti innlent Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Stofnuðu nýtt félag þegar þeir sáu í hvað stefndi hjá Capacent Viðskipti innlent Fordæmalaus skortur á skötu Neytendur Innkalla kerti vegna eldhættu Neytendur Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Fleiri fréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent