Viðskipti innlent

Nýjum tækjum ekki við komið í gömlu byggingunum

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá vinstri Þorkell Sigurlaugsson, stjórnarmaður í Spítalanum okkar, Anna Stefánsdóttir, formaður í Spítalanum okkar, Jensína K. Böðvarsdóttir framkvæmdastjóri Landsbankanum, Elínborg V. Kvaran, markaðstjóri Landsbankanum,
Frá vinstri Þorkell Sigurlaugsson, stjórnarmaður í Spítalanum okkar, Anna Stefánsdóttir, formaður í Spítalanum okkar, Jensína K. Böðvarsdóttir framkvæmdastjóri Landsbankanum, Elínborg V. Kvaran, markaðstjóri Landsbankanum, Aðsend mynd
Landsbankinn og landssamtökin Spítalinn okkkar hafa skrifað undir styrktarsamning um kynningarstarf vegna uppbyggingar nýs húsnæðis Landspítalans. Tilgangur kynningarstarfsins er að afla stuðnings meðal almennings og stjórnvalda við framkvæmdir við nýbyggingar Landspítala svo þær geti hafist hið fyrsta og að tryggja megi með því örugga heilbrigðisþjónustu í landinu.

„Stuðningur Landsbankans er okkur mjög mikilvægur og hjálpar okkur að ná markmiðum okkar með kynningarstarfinu,“ segir Anna Stefánsdóttir, formaður Spítalinn okkar, í tilkynningu.

Mat samtakanna er að mikilvægi nýbygginga sé óumdeilt þar sem húsnæði Landspítala uppfyllir ekki staðla nútíma heilbrigðisþjónustu. Í tilkynningunni segir að margs konar nýrri tækni, sem nú er staðalbúnaður á nútíma sjúkrahúsum, verði ekki við komið í gömlu byggingunum sem séu þar að auki dreifðar um borgina með tilheyrandi óhagræði.

„Með eðlilegum tengslum milli starfseininga muni starfsemin batna, mistökum fækka og öryggi sjúklinga verða betur tryggt en nú er. Samtökin benda sérstaklega á í þessu samhengi að sterk tengsl eru milli aðbúnaðar sjúklinga og árangurs við meðferð,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×