Segist aldrei hafa hitt hamingjusama vændiskonu Höskuldur Kári Schram skrifar 4. nóvember 2014 18:30
Tugir kvenna leita til Stígamóta á hverju ári vegna vændis en talskona samtakanna segir að þær hafi allar þurft að þola líkamlegt og andlegt ofbeldi. Hún kveðst aldrei hafa hitt hamingjusama vændiskonu. Rætt var við unga vændiskonu í fréttaskýringaþættinum Brestum á Stöð 2 í gær. Konan er gift og á eitt barn með manninum sínum en hún sagði að vændið hafi ekki haft skaðleg áhrif á sig. Reynsla hennar er á skjön við það sem starfsfólk Stígamóta þekkir en þangað leita tugir kvenna á hverju ári útaf vændi. Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta segir aldrei hafa hitta hamingjusama vændiskonu. „Við höfum ekki hitt hana hér á Stígamótum. Starf okkar snýst mikið um að aflífa goðsagnirnar um hina hamingjusömu vændiskonu vegna þess að raunveruleikinn sem að okkar konur lýsa er ansi fjarri því sem oft er haldið að fólki. Einmitt sú goðsögn er forsenda þess að karlar geti réttlætt það að kaupa konur og þess vegna eru þessar goðsagnir mjög skaðlegar,“ segir Guðrún. Hún segir heim þessara kvenna einkennast af ofbeldi, fíkniefnum og kúgun. Þær séu mjög brotnar þegar þær koma til Stígamóta. „Þær eru uppfullar af skömm og sektarkennd. Það fer mjög illa með þær að lifa tvöföldu lífi. Að halda því leyndu að þær séu í vændi af því að þær eru líka gjarnan mæður, frænkur, systur og þurfa að ganga hér mitt á meðal okkar,“ segir Guðrún.
Mest lesið Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Fleiri fréttir Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar þurfa að láta í minnipokann fyrir rigningunni Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Fyrrum bæjarstjóri og bankastjóri leiða stjórn Landspítalans „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Málaður regnbogafáni gæti reynst of sleipur Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Samherji og Guðrún Karls berjast saman gegn fíknidjöflinum Ástarsvik sífellt algengari og rannsókn lokið í Eyjum Sjá meira
Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar þurfa að láta í minnipokann fyrir rigningunni