Innlent

40 ákærðir fyrir kaup á vændi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ákærurnar voru gefnar út í byrjun október en ríkissaksóknar bárust alls 64 mál frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum vegna kaupa á vændi.
Ákærurnar voru gefnar út í byrjun október en ríkissaksóknar bárust alls 64 mál frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum vegna kaupa á vændi. Vísir/Getty
Ríkissaksóknari hefur ákært 40 einstaklinga fyrir kaup á vændi. Þetta kemur fram á vef embættisins. Samkvæmt hegningarlögum getur brotið varðað fangelsi allt að einu ári.

Ákærurnar voru gefnar út í byrjun október en ríkissaksóknara bárust alls 64 mál frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum vegna kaupa á vændi.

Málin eru nú til meðferðar við Héraðsdóm Reykjavíkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×