Heilsa

Hollustubröns að hætti meistara

Birta Björnsdóttir skrifar
Í Meistaramánuði eru  margir með það að markmiði að borða hollari mat. Sumir óttast þó að það sé óskaplega óspennandi að skipta hollari mat út fyrir óhollari. Það þarf þó ekki endilega að vera þannig.

Í þriðja þætti af Meistaramánuði sýndi Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir okkur hvernig á að galdra fram dýrindis helgarbröns sem innihélt meðal annars heimagert múslí, grænan drykk, eggjamúffur, salat, ávexti og heimsins auðveldustu pönnukökur.

Grænn súpersafi

1 banani

Handfylli spínat

2 dl. Frosið mangó

2 cm. Rifinn engiferrót

1 msk. Chiafræ

200 ml. Eplsafi eða annar vökvi t.d. vatn eða kókosvatn

Aðferð: Allt sett í blandarann í nokkrar mínútur. Berið fram í fallegu glasi og njótið.
visir/skjaskot

Einföldustu pönnukökur í heimi

4 egg

2 bananar

½ tsk. kanill

¼ tsk. Lyftiduft



Aðferð: Pískið eggin vel saman og leggið til hliðar. Stappið banana og blandið saman við eggin ásamt kanil og lyftidufti. Það er einnig og eiginlega betra að blanda þessu öllu saman í blandara í smá stund. Deigið verður fínna ef sú aðferð er notuð. Hitið t.d. kókosolíu eða smjör á pönnu og steikið pönnukökurnar í örfáar mínútur á hvorri hlið. Njótið með ljúffengu sírópi og ferskum ávöxtum.

visir/skjaskot

Eggjamúffur

8 egg

1 dl mjólk  

1 msk. ólífuolía

salt og nýmalaður pipar

1 rauð papríka

1 græn papríka

1 dl vorlaukur, smátt skorinn

Handfylli spínat

2 – 3 msk. Rifinn ostur t.d. parmesan



Aðferð: Hitið ofninn í 180 gráður við undir- og yfirhita. Eggin eru þeytt létt saman í skál og því næst bætið þið mjólkinni saman við og kryddið til með salti og pipar. Skerið grænmetið fremur smátt, hitið olíu á pönnu og steikið í smá stund. Blandið grænmetinu saman við eggjablönduna og hrærið. Í lokin bætið þið ostinum saman við. Skiptið blöndunni jafnt niður í bollakökuform og bakið í rúmlega 20 – 25  mínútur eða þar til eggjamassinn er orðinn stífur.

visir/skjaskot
Heimalagað múslí

8 dl hafrar

2 dl möndlur

2 dl pekanhnetur

2 dl sólblómafræ

2 dl graskersfræ

2 msk hörfræ

2 dl eplasafi

1 dl kókosolía

½ tsk vanillufræ

2 dl grófar kókosflögur



Aðferð: Hitið ofninn í 170°C. Blandið öllum hráefnum saman í skál og hrærið. Klæðið bökunarplötu með bökunarpappír og dreifið múslíinu á plötuna. Bakið í ca. 30 mínútur eða lengur. Fylgist vel með og hrærið nokkrum sinnum í blöndunni á meðan bökunartíma stendur.  Kælið vel áður en þið berið fram. Bætið t.d. þurrkuðum berjum eða kókosflögum við múslíið þegar það kemur út úr ofninum.

Berið fram með grísku jógúrti, hunangi og berjum. Fullkomið morgunkorn.
visir/skjaskot
Sælkerasalat

150 g klettasalat

2 kúlur Mozzarella ostur

300 – 400 g hráskinka

1 askja kirsuberjatómatar

8 – 10 jarðaber

Ristaðar furuhnetur, magn eftir smekk

Balsamik gljái



Aðferð: Leggið klettasalatið á fallegan disk, skerið Mozzarella ostinn í jafnstóra bita og dreifið ofan á salatið. Setjið hráskinkuna yfir salatið og skerið jarðaber og tómata smátt og dreifið yfir hráskinkuna. Ristið furuhnetur og dreifið yfir í lokin. Gott er að bera salatið fram með balsamik gljáa. 

Tengdar fréttir

Ætlar að njóta augnabliksins

Sylvía Ósk Rodriguez hefur sett sér þrjú markmið í Meistaramánuði. Eitt markmiðanna er nokkurs konar framhald á markmiði sem hún setti sér í Meistaramánuði í fyrra en þá ákvað hún að borða engan sykur í mánuðinum. Hún hefur lést um þrjátíu kíló síðan.

5 bestu snjallsímaforritin fyrir skipulagðara líf

Heilsuvísir er búinn að taka saman 5 forrit sem þú getur hlaðið niður í símann þinn og hjálpa þér við að ná betri árangri í þeim verkefnum og markmiðum sem að þú ætlar að setja þér.

Mikilvægt að ætla sér ekki um of

Maður sér það of oft að fólk fer allt of geyst af stað og ætlar sér of mikið á stuttum tíma. Ansi margir gugna þá eftir nokkrar vikur og finnst þeir vera komnir á byrjunarreit.

Allir með í Meistaramánuði

Birta Björnsdóttir hefur að undanförnu sankað að sér hvetjandi og skemmtilegu efni sem tengist meistaramánuðinum á einhvern hátt.

Þetta er svo mikil fíkn

"Ég verð örugglega bara sveittur og skjálfandi einhverstaðar úti í horni,“ segir verðandi meistarinn Bobby Breiðholt.

10 hollráð fyrir Meistarmánuð

Markmið er góð leið til þess að láta drauma sína og óskir rætast en það er ekki það sama að hugsa um markmiðin og að framkvæma þau.

Mikilvægur hlekkur að sýna sjálfum sér samkennd og vinsemd

Margir setja sér markmið í Meistaramánuði en til þess að ná þeim þarf að hafa jákvæða afstöðu til þeirra og temja sér sjálfsvinsemd. Borghildur Sverrisdóttir er höfundur bókarinnar Hamingjan eflir heilsuna sem kemur út síðar í mánuðinum. Hún segir jákvætt

Munaður í Meistaramánuði

Nú er Meistaramánuður og um að gera að setja sér háleit markmið, og auðvitað á það einnig við um ástarlífið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×