Svona er listinn yfir stór útboð í vegagerð 2015 Kristján Már Unnarsson skrifar 16. október 2014 19:00
Engin ný stór verkefni verða boðin út í vegagerð á næsta ári, ef fram fer sem horfir. Vegamálastjóri segir brýnna að setja alla peningana í viðhald vega. Hreinn Haraldsson vegamálastjóri segir að áformað hafi verið að verja sjö til áttahundruð milljónum króna í ný verkefni en nú séu horfur á að allt féð fari í viðhald. Bæði Vegagerðin og innanríkisráðherra hafi rætt um að þetta fé færi frekar í viðhald vega og þjónustu. Einnig hafi ályktanir borist frá sveitarfélögum um að brýnna sé að setja allt viðbótarfé í viðhald vega. Það verði þó ekki ljóst fyrr en við afgreiðslu fjárlaga hversu mikið fé verði sett í nýframkvæmdir. Listi næsta árs yfir helstu útboð stefnir í að verða talsvert breyttur frá því sem menn hafa vanist undanfarna áratugi. Það er einfaldlega hvergi gert ráð fyrir að nýtt stórt verk verði boðið út.Hreinn Haraldsson vegamálastjóri.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.„Það verða allavega einhver smærri verkefni, slitlag á tengivegi og ýmislegt fleira. En ef þetta færi þannig að þetta fé, sem kom inn í frumvarpið, yrði sett í viðhald og þjónustu, þá er ekki um að ræða útboð á neinum stærri framkvæmdum á næsta ári,“ segir vegamálastjóri. Og hann er langur verkefnalistinn sem vegamálastjóri gerði ráð fyrir að bjóða út á næsta ári, miðað við samgönguáætlun; brú á Jökulsá á Fjöllum, Dettifossvegur, Arnarnesvegur í Kópavogi, hringvegurinn í Berufirði, Reykjavegur í Árnessýslu og fleira. „Það hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvað af þessum verkefnum yrði farið í, ef það fæst eitthvert fé í slíkar nýjar framkvæmdir.“ -Miðað við horfur nú, er líklegt að allt þetta verði slegið af? „Ekki slegið af. Yrði þá frestað. Því við treystum því nú að það yrði ekki meira en ársfrestun á þessum verkefnum því menn verða að fara að gera eitthvað í viðhaldi vega og bæta þjónustuna. Það er allstaðar kallað eftir þvi þannig að það mun ganga fyrir.“Frá lagningu fyrsta áfanga nýs Dettifossvegar árið 2009. Til stóð að bjóða út lokaáfangann á næsta ári.Stöð 2.
Mest lesið Endurskipuleggja reksturinn „í vinsemd og virðingu“ Viðskipti innlent Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Viðskipti innlent Japanskir bílaframleiðendur í skýjunum eftir tollasamkomulag Viðskipti erlent Tekjur jukust um helming milli ára Viðskipti innlent Hátt í þrjátíu sagt upp hjá Play Viðskipti innlent Svona verður hægt að horfa á enska boltann í vetur Neytendur HBO Max streymisveitan komin til Íslands Viðskipti innlent Tæpur milljarður í höfundarréttartekjur Viðskipti innlent Orri til liðs við Íslandsbanka Viðskipti innlent Róðurinn þungur en hefur ekki áhyggjur af Play Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Endurskipuleggja reksturinn „í vinsemd og virðingu“ Tekjur jukust um helming milli ára Hátt í þrjátíu sagt upp hjá Play Gengið rétti lítillega úr kútnum en hefur aldrei verið lægra Róðurinn þungur en hefur ekki áhyggjur af Play HBO Max streymisveitan komin til Íslands Gengi Play í frjálsu falli Alþjóðlegt bílafyrirtæki kaupir Öskju og systurfélög Búast við tveggja milljarða tapi Samruninn muni taka langan tíma Orri til liðs við Íslandsbanka Tæpur milljarður í höfundarréttartekjur Erlendir farþegar á bak við 81 prósent tekna Icelandair Auður leiðir nýja samsteypu á íslenskum markaði Virði Icelandair hrapar eftir uppgjör „Við erum alls ekki í nokkru stríði“ Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun Vaka stýrir Collab Hagnaður Arion flaug fram úr væntingum Fjárfestar í sjávarútvegi fari að líta annað Hvenær er skynsamlegt að taka út viðbótalífeyrissparnað? Stígur til hliðar vegna „ólíkrar sýnar“ á breytingar Davíð nýr framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Íbúðum í byggingu fækkar Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Sjá meira
Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun