Stýrivextir Seðlabankans verða óbreyttir 1. október 2014 08:53 Stýrivöxtunum hefur ekki verið breytt á síðustu 14 fundum Peningastefnunefndar Seðlabankans. Vísir/Pjetur
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum. Vextirnir hafa verið óbreyttir frá nóvembermánuði 2012. Í rökstuðningi nefndarinnar segir að nokkuð hafi dregið úr hagvexti á fyrri hluta ársins en þróunin hafi þó í meginatriðum verið í samræmi við ágústspá Peningamála. „Verðbólga, sem mælist nú 1,8%, hefur verið undir markmiði í átta mánuði samfleytt og horfur eru á minni verðbólgu næstu mánuði en spáð var í ágúst. Verðbólguvæntingar hafa þokast nær markmiði að undanförnu en langtímavæntingar eru enn nokkuð yfir því. Gjaldeyrisinnstreymi hefur haldið áfram en gjaldeyrisviðskipti Seðlabankans hafa stuðlað að stöðugleika krónunnar," segir í yfirlýsingu Peningastefnunefndar. „Aðhald peningastefnunnar hefur aukist meira en áður var búist við samfara hraðari hjöðnun verðbólgu og lækkun verðbólguvæntinga. Nokkur óvissa er þó um túlkun haggagna sakir breyttra uppgjörsaðferða þjóðhagsreikninga sem eykur tímabundið vandann við mat á æskilegu taumhaldi peningastefnunnar. Kröftugur vöxtur innlendrar eftirspurnar á komandi misserum og vaxandi spenna á vinnumarkaði gætu eftir sem áður leitt til aukins verðbólguþrýstings og orðið til þess að nafnvextir Seðlabankans þyrftu að hækka." Vextir Seðlabanka Íslands verða samkvæmt þessu sem hér segir: Daglán: 7,0% 7 daga veðlán: 6,0% Viðskiptareikningar: 5,0% 7 daga bundin innlán: 5,25%
Mest lesið Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Falið að gera Reykjavík aðgengilegri Viðskipti innlent Bretland heldur toppeinkunn sinni Viðskipti erlent Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira