Innflutningur á fersku kjöti aðeins tímaspursmál Gunnar Atli Gunnarsson skrifar 8. október 2014 20:20 Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu. Vísir/Stefán
Eftirlitsstofnun EFTA telur innflutningsbann á fersku kjöti ekki standast samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu hvetur íslensk stjórnvöld til að bregðast við álitinu og segir tímaspursmál hvenær innflutningur á fersku kjöti verði leyfður. Samtök verslunar- og þjónustu kvörtuðu í desember árið 2011 til Eftirlitsstofnunar EFTA vegna innleiðingar íslenskra stjórnvalda á löggjöf um matvæli. Samtökin töldu löggjöfina, sem felur í sér innflutningstakmarkanir á fersku kjöti, brjóta gegn ákvæðum EES-samningsins varðandi frjálsa vöruflutninga. Íslensk stjórnvöld báru því við í málinu að nauðsynlegt væri að takmarka innflutning á fersku kjöti til að vernda líf og heilsu manna og dýra. Þessum málatilbúnaði var með öllu hafnað í áliti Eftirlitsstofnunar EFTA. Kemur þar fram að þau vísindalegu gögn sem íslensk stjórnvöld hafa framvísað, renni ekki stoðum undir gildandi reglur heldur sýni gögnin þvert á móti, að áhætta af sýkingu búfjár gegnum innflutning á fersku kjöti sé hverfandi. „Þetta hefur svo sem engin bein áhrif núna. Við hljótum að beina því mjög eindregið til stjórnvalda að þau sjái nú að sér. Taki mark á þessu áliti og hefji þegar í stað undirbúning að því að breyta íslenskri löggjöf í takt við þetta álit,“ segir Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu.Er að þínu mati tímaspursmál hvenær innflutningur á fersku innfluttu kjöti verði leyfður? „Já, það er bara tímaspursmál,“ segir Andrés. Íslensk stjórnvöld hafa nú tvo mánuði til að bregðast við álitinu en að öðrum kosti getur Eftirlitsstofnun EFTA vísað málinu til EFTA-dómstólsins.
Tengdar fréttir Álit ESA í samræmi við skoðanir Haga "Þetta álit er í fullu samræmi við álit okkar lögmanna,“ segir Finnur Árnason, forstjóri Haga, um nýtt álit ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, þar sem fram kemur að íslensk löggjöf sem takmarkar innflutning á fersku kjöti er brot á EES-samningnum. 8. október 2014 12:17 Innflutningstakmarkanir á fersku kjöti brjóti í bága við EES Íslensk löggjöf sem takmarkar innflutning á fersku kjöti er brot á EES-samningnum að mati ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA. 8. október 2014 11:58 Mest lesið Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira
Álit ESA í samræmi við skoðanir Haga "Þetta álit er í fullu samræmi við álit okkar lögmanna,“ segir Finnur Árnason, forstjóri Haga, um nýtt álit ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, þar sem fram kemur að íslensk löggjöf sem takmarkar innflutning á fersku kjöti er brot á EES-samningnum. 8. október 2014 12:17
Innflutningstakmarkanir á fersku kjöti brjóti í bága við EES Íslensk löggjöf sem takmarkar innflutning á fersku kjöti er brot á EES-samningnum að mati ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA. 8. október 2014 11:58