Bússi og Mörður til RVK Studios Stefán Árni Pálsson skrifar 9. október 2014 14:38 Björn Þórir Sigurðsson og Mörður Finnbogason.
Framleiðandinn Björn Þórir Sigurðsson, betur þekktur sem Bússi, hefur verið ráðinn til RVK Studios. Hann mun hafa umsjón með innlendri framleiðslu fyrirtækis og fylgja eftir örum vexti þeirra á þeim vettvangi en þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Í framleiðslu hjá RVK Studios á innlendum vettvangi er m.a. önnur þáttaröðin af Ísland Got Talent fyrir Stöð2 og fyrir RÚV önnur þáttaröð Hulla, Leitin að Billy Elliot og Ófærð sem mikið hefur verið í fréttum undanfarið en framleiðsla á henni hefst í vetur. Björn Þórir býr yfir gríðarlegri reynslu úr heimi afþreyingar sem mun nýtast honum vel hjá einu öflugasta framleiðslufyrirtæki landsins, RVK Studios. Bússi var yfirmaður framleiðslu og framleiðandi hjá Turner Broadcasting Systems á árunum 2011 til 2014 þar sem hann hafði umsjón með framleiðslu á þriðju og fjórðu þáttaröð af verðlaunaþáttunum Latabæ. Hann var yfirmaður sölu-og markaðsviðs Morgunblaðsins á árnunum 2008 til 2011. Samhliða því stýrði hann auglýsinga-og áskriftarsölu, viðskiptaþróun og allsherjar markaðssetningu blaðsins. Björn Þór var sjónvarpsstjóri á sjónvarpsstöðinni Skjár Einn á árunum 2005 til 2008, Dagskrárstjóri Stöðvar 2 á árunum 2002 til 2005 þar sem hann sá um efniskaup og framleiðslu, framkvæmdastjóri PoppTíví á árnunum 2000 til 2002, Framkvæmdastjóri dagskrár og markaðsvið Saga Communications / Fíns Miðils á árunum 1997 til 2000 þ.s hann stýrði sex útvarpsstöðvum og á árunum 1994 til 1997 byggði hann upp útvarpsstöðina FM957 sem dagskrárstjóri. Bússi er með BA gráðu í Visual Communication frá American Intercontinental University í Los Angeles og hefur setið í stjórn fjölda innlendra og erlendra fyrirtækja gegnum árin svo sem Eddu útgáfu, SMÁÍS og MediaXchange. Í tilkynningunni segir einnig að Mörður Finnbogason hafi verið ráðinn fjármálastjóri RVK Studios. Mörður gengur til liðs við fyrirtækið frá KPMG ehf. þar sem hann hefur verið verkefnastjóri á endurskoðunarsviði síðan í september 2007. Hjá KPMG starfaði hann fyrir margvísleg fyrirtæki svo sem fyrirtæki skráð á opinberum hlutabréfamarkaði, opinber félög, fjárfestingafélög og mörg önnur félög í ólíkum starfsgeirum. Mörður starfaði sem bókari hjá Phoenix Seafood Inc. og önnur fyrirtæki í Dalian Kína á árunum 2008 og 2009. Hann starfaði sem fjármálastjóri Iceexpress LLC. í New York frá árinu 2004 til 2007, sem bókari hjá Fulltingi lögmannsstofu árið 2003, útflutningsstjóri hjá Iceexpress LLC. í New York árið 2002 og bókari hjá Ferðafélaginu Útivist á árunum 1997 til 2000. Mörður er M.acc í reikningshaldi og endurskoðun frá Háskóla Íslands, MS í reikningshaldi frá Baruch College, Zicklin School of Business í New York og BS í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Fleiri fréttir B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Sjá meira