Fljúga til Dyflinnar, Rómar og Billund Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. september 2014 12:13 Colosseum í Róm. Vísir/AFP
WOW air mun hefja flug til þriggja nýrra áfangastaða í Evrópu næsta vor auk þess að bæta við flugferðum til núverandi áfangastaða. Gert er ráð fyrir 60% aukningu á farþegum milli ára frá 500 þúsund farþegum núna í ár í 800 þúsund farþega á næsta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá WOW air. WOW air verður með sex flugvélar í flota sínum næsta sumar en var með fjórar flugvélar síðastliðið sumar. Nýju vélarnar verða af gerðinni Airbus A321, þrjár vélar að gerðinni Airbus A320 og eina vél að gerðinni Airbus A319. Flogið verður til Dyflinnar þrisvar sinnum í viku frá og með 2. júní og verður borgin heilsársáfangastaður. Flogið verður á þriðjudögum, fimmtudögum og sunnudögum. Höfuðborg Ítalíu, Róm mun bætast við flugáætlun frá og með 1. júlí og flogið verður í tvo mánuði, júlí og ágúst einu sinnu í viku á föstudögum. Frá 12. júní mun vera flogið til Billund í Danmörku á mánudögum og frá Billund á föstudögum. Aukning verður á flugum til Amsterdam úr þremur flugum á viku upp í fjögur flug á viku. Frá og með næsta vori mun Amsterdam verða heilsársáfangastaður. Mikil aukning verður á flugum til núverandi áfangastaða WOW air. Aukning á flugum til Alicante verður úr þremur flugum á viku í fjögur flug á viku frá og með apríl á næsta ári yfir sumartímann. Í ár flýgur WOW air til Alicante út nóvember. Aukning verður til Barcelona úr þremur flugum í fjögur flug á viku frá og með 15. maí á næsta ári og flogið verður út október líkt og í ár. Til Mílanó verður flogið þrisvar sinnum í viku en tvö síðustu sumur flaug WOW air þangað tvisvar sinnum í viku. Aukning verður líka á heilsársáfangastöðum WOW air. Flugferðir til Parísar verða auknar úr sjö flugum í átta flug á viku. Flug til Berlínar verða enn fleiri á næsta ári, frá fimm flugum í sjö flug á viku. Einnig verður einu auka flugi bætt við á viku til Kaupamannahafnar. Hætt verður við flug til Zurich og flugum til Stuttgart og Düsseldorf verður fækkað um eitt á viku. Flugáætlun WOW air til London, Lyon, Vilníus og Varsjár verður óbreytt milli ára. „Nýliðið sumar gekk mjög vel hjá WOW air. Heildartekjur, sætanýting og afkoma var mjög góð. Jafnframt erum við mjög stolt af stundvísistölum okkar sem voru frábærar sérstaklega með tilliti til þess að þetta var fyrsta sumarið þar sem við vorum að fljúga á eigin flugrekstrarleyfi. Við erum þakklát fyrir hversu vel okkur hefur verið tekið bæði hér innanlands og erlendis. Bókunarstaðan fram á veginn hefur aldrei verið betri og því munum við halda áfram að vaxa til að anna aukinni eftirspurn auk þess að bæta við nýjum spennandi áfangastöðum“ segir Skúli Mogensen stofnandi og forstjóri WOW air.
Mest lesið Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Viðskipti innlent Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Dóra Björt ráðin deildarstjóri Viðskipti innlent Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Viðskipti innlent Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Viðskipti innlent Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Viðskipti erlent Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent Kristinn V. Jóhannsson er látinn Viðskipti innlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Sjá meira
Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent
Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent