Ingvi Jökull eignast H:N Markaðssamskipti Samúel Karl Ólason skrifar 30. september 2014 15:42 Aðsend mynd
Ingvi Jökull Logason hefur keypt alla hluti í auglýsingastofunni H:N Markaðssamskiptum. Áður hafði hann átt þriðjungshlut í fyrirtækinu á móti Ragnheiði K. Sigurðardóttur og Ólöfu Þorvaldsdóttur. Í tilkynningu frá H:N segir að Ragnheiður muni áfram starfa á stofunni en Ólöf hafi verið starfsfólki til ráðgjafar. „Það er óhætt að segja að Ingvi Jökull hafi fengið auglýsingafagið með móðurmjólkinni því fyrstu kynni hans af auglýsingaheiminum var þegar hann lék í mjólkurauglýsingu sem móðir hans stýrði. Hann hefur unnið hjá H:N Markaðssamskiptum í rúm tuttugu ár, þar af framkvæmdastjóri í 10 ár, og hefur komið að skipulagningu og framkvæmd margra af stærstu og áhrifaríkustu auglýsingaherferða sem ráðist hefur verið í hér á landi.“ Ingvi Jökull situr í dómnefndum erlendra og innlendra auglýsingasamkeppna og í ritstjórn Advertising IMC, útbreiddustu kennslubókar um auglýsingafræði á háskólastigi í Bandaríkjunum. Þá sinnir hann einnig ráðgjafahlutverki hjá stórum og smáum fyrirtækjum. „Það verða ekki gerðar stórvægilegar breytingar á stofunni þó eignarhaldið hafi breyst, þessi yfirfærsla hefur staðið yfir í tvö ár. Við munum áfram sinna núverandi viðskiptavinum af bestu getu og halda sömu stefnu með grunnáherslu á árangursríkar herferðir,“ segir Ingvi Jökull. „Við hjá H:N munum halda áfram að skemmta okkur og höfum bætt við okkur starfsfólki til að auka áherslu á hönnun og almannatengsl. Það er óhætt að segja að það séu spennandi tímar í auglýsingaheiminum.“ Meðal þeirra sem hafa verið ráðnir til H:N Markaðssamskipta að undanförnu er Högni Valur Högnason, formaður Félags íslenskra teiknara, sem starfar sem hugmynda- og hönnunarstjóri hjá H:N, og Kristján Hjálmarsson, fyrrverandi fréttastjóri Fréttablaðsins og Vísis.
Mest lesið Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Falið að gera Reykjavík aðgengilegri Viðskipti innlent Bretland heldur toppeinkunn sinni Viðskipti erlent Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira