Viðskipti innlent

Fékk 48 klukkustunda óvissuferð á Íslandi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ný auglýsingaherferð Icelandair, þar sem fólk er hvatt til að tilnefna fólk sem á skilið óvissuferð til Íslands, hefur vakið mikla athygli. 100 þúsund manns hafa horft á myndbandið á innan við sólarhring.

„Þessi reynsla mín á Ísland hefur minnt mig á hvað er mikilvægt í lífinu,“ segir Kat sem hélt frá Seattle í Bandaríkjunum áleiðis til London með millilendingu í Keflavík. Að því er fram kemur í auglýsingunni beið hópur fólks eftir henni í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og voru framundan tveir sólarhringar af skemmtun.

Fylgst er með ferðalagi Kat á landinu og er óhætt að segja að henni takist að gera ótrúlega margt á 48 klukkustundum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×