Svipmynd Markaðarins: Eyðir frítímanum í hundinn, golf og te Haraldur Guðmundsson skrifar 29. september 2014 09:03 Andri heldur mikið upp á Danmörku en hann bjó í landinu í fjögur ár. Vísir/GVA „
Þessa dagana fer mest af mínum tíma í að undirbúa komu 1800 og þar er allt að smella. Við erum að ráða fólk og semja við fjarskiptafyrirtæki og önnur fyrirtæki um þessa þjónustu,“ segir Andri Árnason, framkvæmdastjóri 1800 ehf. Andri hefur undanfarin fjögur ár unnið að því að koma á fót fyrirtæki sem mun sérhæfa sig í sölu á upplýsingum um símanúmer einstaklinga og fyrirtækja. „Við höfum stefnt að því að fara í samkeppni við 118 og nú lítur út fyrir að það sé að fara að takast,“ segir Andri. Hann bætir við að ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar í sumar, um breytt fyrirkomulag á miðlun símaskrárupplýsinga, hafi verið nauðsynlegur þáttur í að skapa rekstrargrundvöll nýja fyrirtækisins. Andri er stúdent frá Verslunarskóla Íslands og hann lauk BS-námi í viðskiptafræði við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn (CBS) árið 2007. „Ég á mjög góðar minningar þaðan og við kærastan reynum að heimsækja Danmörku eins oft og við getum,“ segir Andri. Hann hóf störf hjá fjölskyldufyrirtækinu Miðlun sama ár og hann útskrifaðist. Faðir Andra, Árni Zophoníasson, stofnaði fyrirtækið árið 1983. „Þegar ég byrjaði þar vann ég sem sölumaður en ég hef verið starfandi framkvæmdastjóri frá árinu 2010 og sinnt daglegum rekstri fyrirtækisins. Nú ætla ég í auknum mæli að færa mig yfir til 1800 og sinna uppbyggingu þess fyrirtækis.“ Andri er í sambúð með Sólrúnu Maríu Reginsdóttur, nema og flugfreyju hjá Icelandair. Spurður um áhugamál nefnir hann golf, te og 30 kílóa hund af tegundinni Golden Retriever. „Ég á hundinn ásamt kærustunni. Hann er fjögurra og hálfs árs gamall og ég reyni að gefa honum eins mikla athygli og ég get. Því fylgja margir göngutúrar og mikil umönnun,“ segir Andri og heldur áfram: „Svo rekum við fjölskyldan annað hliðarfjölskyldufyrirtæki sem heitir Tefélagið þar sem við seljum te í áskrift og í búðir og á veitingastaði. Það fer dálítill kraftur í það líka því við hittumst tvisvar í mánuði og pökkum og veljum te fyrir næstu mánuði. Te er því dálítið stór partur af mínum frítíma.“Gunnar Már SigfússonGunnar Már Sigfússon rithöfundur „Andri er frábær drengur í alla staði og minnir mig stundum á örlítið yngri og örlítið hávaxnari útgáfu af sjálfum mér og eigum við því vel skap saman. Ég kynntist honum þegar hann eftir áralanga baráttu náði að klófesta Sólrúnu, konuna sína, en hún er systir nr. 3 í röð fegurðardísa sem bera eftirnafnið Regins. Fyrir utan kvensmekkinn deilum við miklum og djúpum áhuga á rauðvíni og góðum mat og höfum átt mjög margar eftirminnilegar stundir saman við matarborðið og ég er nokkuð viss um að við munum einhvern tíma opna veitingastað saman. Svona til að toppa þetta þá virðumst við einnig vera með mjög áþekkan fatasmekk og höfum oftar en ekki mætt í nánast sams konar fötum í matarboð og er okkur þá gjarnan ruglað saman … eða þannig.“Sigurgísli BjarnasonSigurgísli Bjarnason, veitingamaður á Snaps og Nings „Ég kynntist Andra Árnasyni þegar við stunduðum nám í Kaupmannahöfn. Andri er hógvær maður og hreykir sér ekki, oft og tíðum það hógvær að þrátt fyrir að við tölum saman daglega þá kemst maður oft að því eftir á að hann er búinn að vera að vinna að einhverju mjög merkilegu í þó nokkurn tíma. Andri er fróðleiksfús og gæddur þeim eiginleika að ná að skoða bróðurpart internetsins daglega. Hann er hafsjór af fróðleik og getur maður alltaf leitað svara hjá honum, hvort sem það er vegna nýjustu trenda í viðskiptalífinu eða nafns á götu í erlendri stórborg. Það sem Andri gerir, gerir hann vel. Hann anar ekki út í neitt og ef hann hefur ekki fundið réttu lausnina þá bíður hann þar til hann finnur hana. Andri er klár, ósérhlífinn og duglegur.“
Mest lesið Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Viðskipti innlent Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Dóra Björt ráðin deildarstjóri Viðskipti innlent Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Viðskipti innlent Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Viðskipti innlent Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Viðskipti erlent Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent Kristinn V. Jóhannsson er látinn Viðskipti innlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Sjá meira
Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent
Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent