Stuðningur við ESB-aðild eykst Atli Ísleifsson skrifar 4. september 2014 23:48 Mikill meirihluti stuðningsfólks ríkisstjórnarflokkanna er andsnúið aðild Íslands að Evrópusambandinu. V'isir/Getty
Stuðningur við ESB-aðild eykst samkvæmt nýtti könnun Capacent Gallup og gerð var fyrir Já Ísland. Af þeim sem tóku afstöðu svöruðu 45 prósent á þann veg að þau myndu líklega eða örugglega greiða atkvæði með aðild en tæp 55 prósent líklega eða örugglega á móti aðild.Í frétt Já Ísland segir að stuðningsfólk ríkisstjórnarflokkanna sé andsnúið aðild að sambandinu. Segir að 92 prósent stuðningsfólks Framsóknar myndu líklega eða örugglega greiða atkvæði gegn aðild, en 83 prósent stuðningsfólks Sjálfstæðisflokksins. 89 prósent stuðningsfólks Samfylkingarinnar, 81 prósent stuðningsfólks Bjartrar framtíðar og 55 prósent stuðningsfólks bæði Vistri grænna og Pírata myndu hins vegar greiða atkvæði með aðild, ef kosið yrði um málið nú. „Leita þarf mörg ár aftur í tímann til þess að sjá svo lítinn mun á stuðningsmönnum og andstæðingum aðildar,“segir í tilkynningunni. Spurt var: Ef aðild Íslands að Evrópusambandinu (ESB) yrði borin undir þjóðaratkvæði í dag, hvernig telur þú líklegast að þú myndir greiða atkvæði?Könnunin var gerð dagana 29. júlí til 10. ágúst 2014 og var netkönnun meðal 1.500 manns á öllu landinu, 18 ára og eldri, handahófsvöldum úr Viðhorfahópi Capacent Gallup. Þátttökuhlutfall var 54,6 prósent.
Mest lesið Óttast að áætlanir ráðherra muni fækka leigubílstjórum Innlent Fundu Guð í App store Erlent Eiga eftir að ráða tólf starfsmenn svo hægt sé að opna allar deildir Innlent Segja áform ráðherra grafa undan þjónustu Innlent Sumarfríið allt of langt fyrir þau börn sem eingangra sig félagslega Innlent Skorast ekki undan ábyrgð vilji flokksmenn nýjan oddvita Innlent Nýr kókaínkóngur í Mexíkó Erlent Nýburar fæðast í nikótínfráhvörfum Innlent Aðalsteinn volgur og Björg orðuð við oddvitann Innlent SUS gefur fundarmönnum bol í anda Charlies Kirk Innlent Fleiri fréttir Sumarfríið allt of langt fyrir þau börn sem eingangra sig félagslega Segja áform ráðherra grafa undan þjónustu Óttast að áætlanir ráðherra muni fækka leigubílstjórum Ekki eigi að stjórna borginni út frá „pólitískri kreddu“ Eiga eftir að ráða tólf starfsmenn svo hægt sé að opna allar deildir Skorast ekki undan ábyrgð vilji flokksmenn nýjan oddvita Nýburar fæðast í nikótínfráhvörfum Skipulagsbreytingar á framhaldsskólastigi í vændum Mæður sem taka í vörina á meðgöngu og missáttir leigubílstjórar Björn strax hættur í íþróttaráði: „Þetta var bara prinsippmál“ SUS gefur fundarmönnum bol í anda Charlies Kirk Eins og löglærður forstjóri spítala væri að skera upp sjúklinga Aðalsteinn volgur og Björg orðuð við oddvitann Eldur í ruslageymslu á Selfossi Segist hafa flækst í umfangsmikið fíkniefnamál fyrir hreina tilviljun Annar oddviti L-listans á Akureyri hættir í bæjarstjórn Ók á fimm til sex kyrrstæða bíla Næsta skref að tryggja að próf leigubílstjóra verði alfarið á íslensku „Fólk hefur hætt eða nánast verið bolað úr starfi síðan hún tók við“ Tilkynntur til lögreglu Flóamenn taka fálega í þreifingar Árborgara Óveðurský yfir Sólheimum og deilt á ríkisendurskoðanda Meirihluti vill flugvöllinn áfram í Vatnsmýri Táningar reka veitingastað: „Maður verður að hafa fyrir lífinu“ Stöðvarskyldan snýr aftur: Eykur öryggi farþega og neytendavernd Hildur vill leiða áfram en Guðlaugur loðinn í svörum „Þegar þú verður ráðherra verður þú að tala af ábyrgð“ Ekkert bólaði á ræðumanni Biðin eftir leikskólaplássi kostaði móður vinnuna Lýsti sjálfsvígshugsunum í pontu Alþingis Sjá meira