Sýndi ógnandi tilburði á Bar 7 Samúel Karl Ólason skrifar 10. ágúst 2014 11:59 Mynd/Ágústa
Karlmaður varð fyrir fjórum stungusárum í átökum á Frakkastíg um áttaleytið í gær. Sjónarvottur sem varð vitni að atburðarrásinni frá upphafi til enda segir að árásarmaðurinn hafi verið með ógnandi tilburði inn á Bar 7 á Frakkastíg. Maðurinn sem var stunginn var þar í þriggja manna hópi. Hann hafi þar verið með Leatherman töng, sem er með hníf í öðrum endanum og sveiflað henni um. Vitnið segir manninn greinilega ekki verið í jafnvægi og ölvaður, en sagði ekkert hægt að fullyrða um hvort hann hafi verið undir áhrifum fíkniefna. Dyravörður ræddi við manninn og einnig ungur maður sem virtist róa hann niður. Vitnið fór út af Bar 7 og gekk upp að horni Frakkastígs og Laugavegs. Þá lenti mönnunum þremur saman við árásarmanninn. Þeim hafi þó tekist að hrekja hann í burtu með því að taka af sér belti og slá til hans. Hann segir árásarmanninn, sem sé Íslendingur, hafa hlaupið upp að Laugarveginum blóðugur á höfði eftir beltissylgju. Síðan hafi hann rokið aftur niður Frakkastíginn og stungið einn mannanna margoft. Fórnarlambið, sem er maður af erlendu bergi brotinn fékk fjögur stungusár, samkvæmt Friðriki Smára Björgvinssyni yfirlögregluþjóni, sem fer með rannsókn málsins. Hann var ekki lífshættulega særður og var útskrifaður af sjúkrahúsi skömmu eftir miðnætti. Bæði árásarmaðurinn og sá sem var stunginn eru á fertugsaldri. Árásarmaðurinn var handtekinn og verður yfirheyrður í dag. Eftir það verður ákvörðun tekin um framhald málsins samkvæmt Friðriki Smára.
Mest lesið Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Erlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Fleiri fréttir Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Sjá meira