Lífið

Weird Al gerir grín að Lorde

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Spéfuglinn Weird Al Yankovic er búinn að gefa frá sér nýtt lag. Það heitir Foil og gerir grínarinn þar gys að laginu Royals með söngkonunni Lorde.

Fjallar lagið um mat og hvernig Weird Al geti aldrei klárað matinn sinn á veitingastöðum. Hann þurfi því að fara með matinn heim í bréfpoka.

Foil er nýjasta lagið sem Weird Al gerir myndband við en það er af plötunni Mandatory Fun sem er hans fjórtánda plata. 

Hann hefur nú þegar náð velgengni með laginu Tacky sem er grínútgáfa af Happy með Pharrell Williams og Word Crimes sem gerir grín að Blurred Lines með Robin Thicke.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.