Lífið

Ísland í aðalhlutverki í nýrri kampavínsauglýsingu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Ísland er í veigamiklu hlutverki í nýrri auglýsingu frá kampavínsrisanum Dom Pérignon.

Auglýsingin er fyrir nýju kampavínstegundina P2 og fóru tökur fram hér á landi í mars.

Íslenska framleiðslufyrirtækið Sagafilm aðstoðaði tökuliðið hér á landi en ekki gekk allt eins og í sögu eins og Árni Björn Helgason, yfirmaður erlendrar framleiðslu hjá fyrirtækinu sagði frá í Fréttablaðinu fyrr á þessu ári.

Í miðjum tökum fór tökuliðið út að borða á Grillmarkaðinum og lenti aðaltökumaðurinn frá Frakklandi í því að bragða humar en hann er með bráðaofnæmi fyrir honum.

„Hann var sendur með sjúkrabíl og þurfti að gista yfir nótt á spítala,“ sagði Árni Björn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.