Ekkert Fanta Lemon á Íslandi í sumar Stefán Ó. Jónson skrifar 2. júlí 2014 10:46
Fanta Lemon verður ekki framleitt í sumar líkt og verið hefur síðustu sumur. Drykkurinn á sér marga gallharða aðdáendur hérlendis sem hafa löngum þurft að berjast fyrir áframhaldandi framleiðslu Fanta Lemon en þetta er ekki í fyrsta sinn sem sala á drykknum er stöðvuð. Til að mynda fóru gosdrykkjaunnendur í herferð á netinu í upphafi árs 2009 fyrir því að framleiðsla Fanta Lemon yrði hafin á nýju og á þriðja þúsund manns skrifaði undir áskorun þess efnis á Facebook. Hafði drykkurinn þá verið illfáanlegur frá aldamótum. Varð það til þess að Vífillfell féllst á kröfur þeirra og hóf sölu á Fanta Lemon að nýju en drykkurin hefur verið fáanlegur í nokkra mánuði yfir hásumarið á síðustu árum. Nú er hins vegar ljóst að því verður öðruvísi farið þetta sumarið. Jón Viðar Stefánsson, markaðsstjóri gosdrykkja hjá Vífilfelli, segir framleiðslustöðvunina tilkomna vegna breyttra áherslna hjá fyrirtækinu. Nýverið hafi drykkurinn Fanta Zero verið kynntur til sögunnar og vildu þau hjá Vífilfelli heldur einbeita sér að því að koma þessum „sykurlausa sumardrykk“ á markað en að hefja framleiðslu á Fanta Lemon að nýju. Salan á drykknum hafi einfaldlega ekki staðið undir sér á síðustu árum. Því hafi verið tekin sú ákvörðun að bjóða ekki upp á Fanta Lemon þetta sumarið – en Jón Viðar útilokar þó alls ekki að drykkurinn verði fáanlegur í íslenskum verslunum í framtíðinni. „Ef eftirspurn og aðstaða á markaði kalla á slíkt,“ eins og hann kemst að orði. Hér að ofan má sjá umfjöllun fréttastofu Stöðvar 2 af því þegar tekið var að framleiða Fanta Lemon að nýju í maí árið 2009.
Mest lesið Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Sjá meira