Heilsa

Þjáistu af B12-vítamínskorti?

Ragnheiður Guðmundsdóttir skrifar
Er slenið að sliga þig?
Er slenið að sliga þig? Mynd/Getty
B12 er vatnsleysanlegt vítamín sem gegnir ýmsum hlutverkum í líkamanum. Það er mikilvægt til þess að viðhalda heilbrigðu taugakerfi, nauðsynlegt í myndun erfðaefnisins DNA og einnig er það mikilvægt fyrir myndun rauðra blóðkorna.

Skortur á  B12 getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér ef hann er ekki meðhöndlaður.

Þú getur fengið B12 vítamín úr fæðu eða fæðubótarefnum, hversu mikið þú þarft fer eftir aldri. Skortur á B12 vítamíni er algengara hjá eldra fólki en hjá þeim sem yngri eru.

Hvað veldur B12 vítamínskorti?

Skert upptaka í meltingarvegi vegna sjúkdóma í maga eða þörmum

Aðgerðir, eins og brottnám maga

Langvarandi notkun sýrubindandi magalyfja

Mikil eða langvarandi notkun sýklalyfja

Mikil áfengisneysla

Grænmetisætur eru í meiri hættu en aðrir að þróa með sér B12 vítamínskort og þá sérstaklega þeir sem eru vegan. Kjöt, egg og mjólkurvörur eru þær fæðutegundur sem eru ríkastar af B12 vítamíni og því mikilvægt fyrir þá sem sneiða hjá öllum dýraafurðum að taka inn vítamínið í formi fæðubótarefna.



Einkenni B12 vítamínskorts

Þeir sem eru með vægan skort geta verið alveg einkennalausir en þegar skorturinn er orðinn alvarlegri geta hin ýmsu einkenni farið að gera vart við sig. Helstu einkenni eru:

Þreyta og orkuleysi

Blóðleysi

Hraður hjarsláttur

Andþyngsli, grunnur andardráttur

Svimi

Fölur húðlitir

Meltingartruflanir eins og magaverkir, niðurgangur eða hægðartregða

Minnkað bragðskyn

Óeðlilegt þyngdartap

Andleg einkenni eins og þunglyndi, skapsveiflur og minnisleysi

 

Meðferð við B12 vítamínsskorti, hvað er til ráða?

Meðferð við skorti á B12 vítamíni fer eftir örsök hans. Ef orsök skortsins er vegna lélegs mataræðis er hægt að lagfæra ástandið með því að auka inntöku á B12 vítamínríkri fæðu eða með inntöku B12 vítamíns í töfluformi. Í sumum tilvikum eru gefnar B12 vítamín sprautur. Í flestum tilfellum lagar aukin inntaka á B12 vandann en ef skorturinn er mjög alvarlegur og langvarandi geta orðið taugaskemmdir í líkamanum sem ekki ganga til baka. Best er að leita til læknis og finna orsök vandans og fá ráð um meðferð. 








×