Segja flugvirkja grafa undan samkeppnisstöðu og atvinnuöryggi Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 20. júní 2014 16:59 Þorsteinn Víglundsson er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins sem sendu frá sér yfirlýsingu rétt í þessu.
Samtök atvinnulífsins telja launakröfur flugvirkja óbilgjarnar, þeir hafi notið óvenju hagstæðrar launaþróunar undanfarin ár og séu með hærri laun en sambærilegir hópar. Þetta kemur fram í tilkynningu til fjölmiðla sem samtökin sendu frá sér í dag. „Yfirlýsing formanns Flugvirkjafélagsins, í kjölfar þess að félagið dró verkfallsboðun sína tilbaka, um að hlé yrði á verkfallsaðgerðum í júlí, felur í sér að áfram vofir óvissa yfir ferðaþjónustunni,“ segir í tilkynningunni. Sú staðreynd að flugvirkjar hafi ekki dregið úr óbilgjörnum launakröfum sínum viðhaldi fyrrnefndri óvissu en mikilvægt sé að aðilar nái saman svo hægt sé að verja útflutnings- og samkeppnisgreinar landsins, öllum til hagsbóta. Aðilar vinnumarkaðarins hafi unnið að því að undanförnu að breyta vinnubrögðum þegar kjarasamningar eru gerðir. Þetta sé gert í því skyni að standa vörð um samkeppnishæfni útflutningsgreina og treysta atvinnuöryggi á þeim vettvangi. „Launkröfur flugvirkja og aðgerðir þeirra ganga þvert á þá stefnu með því að grafa undan samkeppnisstöðu flugrekstursins og atvinnuöryggi starfsfólks í ferðaþjónustu.“ Samninganefnd Samtaka atvinnulífsins og Icelandair reyndu til hins ítrasta að ná samningum við flugvirkja segir í yfirlýsingunni. Var boðið upp á hinar ýmsu útfærslur í nýjum kjarasamningi.
Mest lesið Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Viðskipti innlent „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Viðskipti innlent Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran Viðskipti innlent Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Viðskipti innlent Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip Viðskipti innlent Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Viðskipti innlent „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Viðskipti innlent Atvinnumennskan í útlöndum: Tekjur, tækifæri og margir hattar á höfði Atvinnulíf Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Viðskipti innlent Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Sjá meira