Stórbleikjan liggur víða í Varmá Karl Lúðvíksson skrifar 13. maí 2014 18:55 Marel Ragnarsson með stóru bleikjuna úr Varmá.
Þrátt fyrir að sjóbirtingurinn í Varmá sé allur gengin til sjávar er ennþá hægt að gera góða veiði í ánni og þá sérstaklega ef menn vilja setja í stórar bleikjur. Marel Ragnarsson var á ferðinni við ánna fyrir fáum dögum og náði í allsvakalega flotta bleikju sem er stutt og allverulega þykk um miðjuna. Ekki fylgir sögunni hvað hún var þung en miðað við þær bleikjur sem hafa komið á land úr Varmá þetta vorið gæti hún verið 6-7 pund. Bleikjan tók Peter Ross púpu sem er feyknagóð vorveiðipúpa í silung og þá hnýtt með vænginn í lokað vænghylki. Þeir sem hafa kíkt í Varmá hafa séð mikið af stórri bleikju í Stöðvarhylnum en hún getur verið virkilega stygg og erfið viðureignar svo menn þurfa að nálgast hylinn afskaplega varlega og veiða helst andstreymis ef góður árangur á að nást. En þær liggja víðar en þar svo það er um að gera að skoða staðina fyrir neðan Stöðvarhylinn því þeir fá oftast smá hvíld og þar liggur líka oft væn bleikja. Þeir veiðimenn sem vilja kíkja í Varmá næstu daga geta fundið laus leyfi á vef SVFR.
Stangveiði Mest lesið Aðalfundur SVFR og kosning til stjórnar Veiði Síðustu dagarnir í vatnaveiðinni framundan Veiði Stórir birtingar ennþá að veiðast í Baugstaðarós Veiði Erindi um stíflur og áhrif þeirra Veiði Þær eru bestar léttklæddar Veiði Krefjandi en skemmtilegt í Geirlandsá Veiði Ekki henda girnisafgöngum við veiðistaðinn þinn Veiði 106 sm lax úr Haukadalsá Veiði Fleiri lokatölur úr laxveiðiánum Veiði Nýjar laxveiðitölur - Ytri-Rangá yfir 600 laxa Veiði