Formúla 1

Ferrari hefur enn trú á Raikkonen

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Ferrari menn saman á braut. Raikkonen á aftari bílnum og Alonso á þeim fremri.
Ferrari menn saman á braut. Raikkonen á aftari bílnum og Alonso á þeim fremri. Vísir/Getty
James Allison, tæknistjóri Ferrari-liðsins í formúlu eitt, trúir að Kimi Raikkonen nái að yfirstíga vandræðin sem hafa verið að hrjá hann að undanförnu. Tilraunir finnska ökumannsins til að berjast við liðsfélaga sinn, Fernando Alonso hafa hingað til mistekist.



Í Kína endaði Alonso í þriðja sæti en Raikkonen í því áttunda, rúmum 50 sekúndum á eftir Alonso.

„Kimi er að vinna mjög vel með liðinu, hann á góð samskipti við verkfræðingana sína, við hinn bílinn hinu megin í bílskúrnum, hjálpar okkur að þróa þennan bíl,“ segir Allison um Finnan.

Allison segir Raikkonen sýna fagmennsku á öllum sviðum og er þess fullviss um að hann muni fljótlega fara að sýna betri árangur á brautinni.

Tæknistjórinn lýsir frammistöðu Alonso sem „óaðfinnanlegri“.

„Hjá Fernando höfum við séð eins og venjulega óaðfinnanlega frammistöðu, sækir hvert einasta mögulega stig við hvert tækifæri. Við verðum að þakka honum fyrir það sem hann hefur náð að gera með þennan bíl hingað til á tímabilinu,“ sagði Allison að lokum.


Tengdar fréttir

Tveir titlar ekki nóg fyrir Alonso

Fernando Alonso segir að hann verði ekki áægður ef hann verður enn bara með tvo heimsmeistaratitla þegar hann hættir í Formúlu eitt.

Raikkonen: Við erum ekki heimskir

Ferrari byrjar nýtt tímabil í Formúlu 1 ekki vel en þar á bæ vinna menn hörðum höndum að því að gera bílinn samkeppnishæfan fyrir næstu keppnir.

Bílskúrinn: Hvað er að frétta frá Kína?

Lewis Hamilton á Mercedes vann Kínakappasturinn örugglega. Liðsfélagi hans, Nico Rosberg varð annar, Ferrari maðurinn Fernando Alonso varð þriðji. Hvað gerðist og hvað er helst að frétta? Við förum yfir málin í Bílskúrnum, léttu hliðinni á Formúlu 1 hér á Vísi.

Stefano Domenicali hættur hjá Ferrari

Liðsstjóri Ferrari, Stefano Domenicali er hættur sem liðsstjóri hjá Ferrari samkvæmt ítölskum fjölmiðlum. Marco Mattiacci mun taka við hans starfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×