Hópnauðgun í Breiðholti: "Þegar menn lýsa yfir sakleysi ættu þeir ekki að vera hræddir við að myndbönd komi í leitirnar" Hrund Þórsdóttir skrifar 9. maí 2014 17:33
Fjórir af mönnunum fimm sem kærðir voru fyrir hópnauðgun í Breiðholti um helgina eru undir lögaldri og Barnaverndarnefnd er komin í málið. Fimmmenningarnir voru úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald í dag. Mennirnir voru leiddir fyrir dómara í gær en þeim er gert að hafa nauðgað sextán ára stúlku í heimahúsi í Breiðholti um helgina. Þeir eru allir á átjánda ári nema einn, sem verður tvítugur á árinu. Stúlkan þekkti hina kærðu áður en atvikið átti sér stað og nöfn allra mannanna hafa nú verið birt á samfélagsmiðlum, meðal annars af vinkonu stúlkunnar. Samkvæmt heimildum fréttastofu voru sex piltar upphaflega handteknir en einn þeirra hefur ekki stöðu grunaðs. Lögreglan fór fram á gæsluvarðhald til 15.maí og varð Héraðsdómur Reykjavíkur við þeirri kröfu í morgun. Mennirnir skulu sæta einangrun í gæsluvarðhaldinu en flestir eða allir ætluðu að kæra gæsluvarðhaldsúrskurðinn til Hæstaréttar og gæti niðurstaða þar legið fyrir á mánudaginn. Atvikið er sagt til á myndbandi og er talið að einn hinna ákærðu hafi tekið það upp og hafið dreifingu þess á netinu. Þessi atburður náðist á myndband, segir sig ekki sjálft að það mun auðvelda sönnun í málinu? „Jú, það hlýtur að gera það,“ segir Erlendur Þór Gunnarsson, hæstaréttarlögmaður og verjandi eins mannanna. „Ég hef reyndar ekki fengið staðfest að myndband sé til staðar en ef svo er hlýtur atburðarásin að liggja mjög skýrt fyrir.“ Erlendur segir skjólstæðing sinn ekki hafa séð myndbandið. „En þegar menn lýsa yfir sakleysi ættu þeir ekki að vera hræddir við að myndbönd komi í leitirnar,“ segir hann. Í málum sem þessum ber að gera Barnaverndarnefnd viðvart og Erlendur staðfestir að nefndin sé meðvituð um öll málsatvik.
Tengdar fréttir Fimmmenningarnir nafngreindir á Facebook Sex piltar voru upphaflega handteknir vegna gruns um hópnauðgun. 9. maí 2014 16:08 Myndband af hópnauðguninni í dreifingu á netinu Fimm piltar voru leiddir fyrir dómara í gær vegna ásakana um hópnauðgun. Piltarnir eru á aldrinum sautján til nítján ára. 9. maí 2014 10:08 Fimm piltar handteknir vegna hópnauðgunar Fórnarlambið er sextán ára menntaskólastúlka. Dómari í héraðsdómi hefur tekið sér frest til morguns til að ákveða um gæsluvarðhald. Ungu mennirnir eru í haldi lögreglu og verða vistaðir í fangageymslum í nótt. 8. maí 2014 16:07 Mest lesið Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Innlent Allt að helmingur barna heima vegna veikinda Innlent Gjaldtaka af bílum sé hærri en fjárframlög til vegagerðar Innlent Finnst brotið á réttindum barnsins að orlofið sé skert Innlent Strætó ekið á hjólreiðamann í Laugardal Innlent Staðsetning Íslands „hernaðarlega mjög mikilvæg“ Innlent Bandaríkjamenn vilji koma á fríverslunarsvæði í Donbas Erlent Meintur morðingi Kirk mætti fyrir dómara í gær Erlent Hugrakkir drengir opnuðu sig í fréttum, breyttu kerfinu og skáluðu með Ingu Innlent Vestfirðingar sjá fram á þrenn ný jarðgöng Innlent Fleiri fréttir Fjöldi svæða á landinu misst samband Fjölskyldur fórnarlamba krefjast ábyrgðar Sádi-Arabíu Staðsetning Íslands „hernaðarlega mjög mikilvæg“ Fjögur ár fyrir smygl á rúmum fjórum kílóum af kókaíni 325 milljónir í næsta áfanga LED-ljósavæðingar í Reykjavík Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Líkamsárásir, heimilisofbeldi og vopnaður ökumaður Gjaldtaka af bílum sé hærri en fjárframlög til vegagerðar Allt að helmingur barna heima vegna veikinda Vestfirðingar sjá fram á þrenn ný jarðgöng Landhelgisgæslan eignast sjálfstýrðan kafbát „Mér persónulega fannst þetta gríðarlega gaman“ Hugrakkir drengir opnuðu sig í fréttum, breyttu kerfinu og skáluðu með Ingu Strætó ekið á hjólreiðamann í Laugardal Refsing milduð yfir burðardýri Finnst brotið á réttindum barnsins að orlofið sé skert Þjófar sendir úr landi Fær bara hálft fæðingarorlof og veik leikskólabörn Björn Dagbjartsson er látinn Hvetja til bólusetningar vegna inflúensufaraldurs Slapp ekki með typpamynd til þrettán ára Halda starfsleyfinu þrátt fyrir kröfur íbúa Opna fyrir umferð um „fyrstu hraðbraut á Íslandi“ Vill skoða úrsögn úr EES Leigubílstjóri og vinur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Skaftárhlaup enn yfirstandandi Helgi Valberg tekur við ritarastöðunni Stór áfangi Borgarlínu afgreiddur í skipulagsráði og á leið í kynningu Rannsókn lokið þrjátíu árum eftir snjóflóðið Kópavogur svarar: Ljósmagnið á skiltinu minnkað og þverun væntanleg Sjá meira
Fimmmenningarnir nafngreindir á Facebook Sex piltar voru upphaflega handteknir vegna gruns um hópnauðgun. 9. maí 2014 16:08
Myndband af hópnauðguninni í dreifingu á netinu Fimm piltar voru leiddir fyrir dómara í gær vegna ásakana um hópnauðgun. Piltarnir eru á aldrinum sautján til nítján ára. 9. maí 2014 10:08
Fimm piltar handteknir vegna hópnauðgunar Fórnarlambið er sextán ára menntaskólastúlka. Dómari í héraðsdómi hefur tekið sér frest til morguns til að ákveða um gæsluvarðhald. Ungu mennirnir eru í haldi lögreglu og verða vistaðir í fangageymslum í nótt. 8. maí 2014 16:07