Átökin breiðast hratt út Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 15. apríl 2014 18:51
Vopnaðir aðskilnaðarsinnar hafa í vikunni hertekið opinberar byggingar í nokkrum borgum í austurhluta Úkraínu. Stjórnvöld í Kænugarði gáfu uppreisnarmönnum frest þar til í gær til að yfirgefa byggingarnar áður hervaldiyrði beitt, en þau skilgreina aðgerðir aðskilnaðarsinna sem hryðjuverk. Uppreisnarmenn létu þessar viðvaranir stjórnvalda sem vind um eyru þjóta og lét úkraínski herinn til skarar skríða í morgun. Skotárás var gerð á flugvellií grennd við borgina Donetsk, sem aðskilnaðarsinnar höfðu á valdi sínu, og náði herinn fljótlega yfirráðum. Talið er að ellefu manns hafi fallið í átökunum sem breiðast nú hratt út til nærliggjandi borga og bæja. Oleksandr Turchynov, forseti Úkraínu, sagði á úkraínska þinginu í dag að með hernaðaraðgerðum sé verið að vernda íbúa landsins. Dimitri Medvedev, forsætisráðherra Rússlands, segir aftur á móti að Úkraína rambi á barmi borgarastyrjaldar og varar stjórnvöld í Kænugarði við að beita frekari aðgerðum gegn rússneskumælandi borgurum. Rússar eru sakaðir um að hafa hvatt til aðgerða uppreisnarsinna með því að flytja aukið herlið að landamærum Úkraínu, en þar eru nú um fjörtíu þúsund rússnesskir hermenn í viðbragðsstöðu. Þessu hafa rússnesk yfirvöld ítrekað hafnað, síðast í símtali Baracks Obama Bandaríkjaforseta við Vladimír Pútín Rússlandsforseta í gærkvöldi, þar sem Pútín sagði Rússa engin tengsl hafa við vopnaðar rússneskumælandi sveitir.
Mest lesið Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ Sjá meira