Vilja nýta þekkingu Íslendinga á jarðhita Haraldur Guðmundsson skrifar 2. apríl 2014 10:14 Íslenska sendinefndin og fulltrúar umhverfis- og orkumálaráðuneytis og heimastjórnar Asóreyja funduðu á eyjunni Terceira. Mynd/Orkustofnun „
Samstarfið við Portúgal lofar mjög góðu og með þessari ferð og erindum íslenskra ráðgjafafyrirtækja þá kann að vera að samskipti landanna aukist á næstu árum,“ segir Jónas Ketilsson, verkefnisstjóri hjá Orkustofnun. Hann var á sunnudag staddur á Asóreyjum í Portúgal ásamt íslenskri sendinefnd sem fylgdi Ragnheiði Elínu Árnadóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, þegar samstarfsáætlun Þróunarsjóðs EFTA á sviði jarðvarma á Asóreyjum var kynnt. „Það kom skýrt fram á tvíhliða fundi forseta heimastjórnar Asóreyja og iðnaðarráðherra að það væri sterkur vilji af þeirra hálfu að nýta þekkingu Íslendinga á sviði jarðhita til raforkuvinnslu og einnig til beinnar nýtingar,“ segir Jónas. Hann segir fundarmenn einnig hafa rætt reynslu heimamanna af nýtingu vindorku. Í frétt á heimasíðu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins segir að ráðherra hafi einnig fundað með aðstoðarorkumálaráðherra Portúgals, Artur Trindale, um mögulega samvinnu ríkjanna á sviði orkumála. Þar sé meðal annars horft til aðkomu Þróunarsjóðs EFTA. „Tveir portúgalskir nemendur munu koma til Íslands í vor og sækja sex mánaða nám Jarðhitaskólans og einnig verða haldin sér námskeið á Asóreyjum, en megináhersla samstarfsáætlunarinnar er að reisa þriggja megavatta jarðvarmavirkjun á eyjunni Terceira,“ segir Jónas.
Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Sjá meira