Viðskipti innlent

VR gagnrýnir hækkun stjórnarlauna í Arion

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR
Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR
VR hefur sent stjórnarmönnun og eigendum Arion banka bréf þar sem nýlegri ákvörðun stjórnarinnar um 7% hækkun stjórnarlauna er mótmælt en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá VR.

Í bréfinu, sem undirritað er af formanni VR, Ólafíu B. Rafnsdóttur, segir að ákvörðun bankans gangi í berhögg við þá sátt sem náðist á vinnumarkaði í síðustu kjarasamningum og skorar félagið á stjórnina að draga þessa ákvörðun til baka.

Bréfið má lesa hér að neðan.

VR mótmælir harðlega ákvörðun stjórnar Arion banka frá því í mars 2014 að hækka laun stjórnarmanna bankans um 7%. Ákvörðun stjórnarinnar gengur í berhögg við þá sátt sem náðist á almennum vinnumarkaði í síðustu kjarasamningum þegar samið var um 2,8% almenna hækkun launa.

Markmið kjarasamninganna er að stuðla að auknum kaupmætti almenns launafólks sem hefur tekið á sig umtalsverða kjaraskerðingu á síðustu árum.  Til þess að ná því markmiði verða allir að sitja við sama borð, líka stjórnir fjármálafyrirtækja – 7% launahækkun stjórnarmanna í Arion banka er óásættanleg.

VR skorar á stjórn bankans að draga ákvörðunina til baka og leggja þannig sitt af mörkum til að tryggja þann stöðugleika sem íslenskt launafólk gerir réttmæta kröfu um.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×