Sport

Halldór og Eiríkur verða í beinni á Vísi á AK Extreme

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bræðurnir Eiríkur og Halldór verða í eldlínunni annað kvöld.
Bræðurnir Eiríkur og Halldór verða í eldlínunni annað kvöld. mynd/samsett
Snjóbretta- og Tónlistarhátíðin AK Extreme hófst á Akureyri í gær og stendur hún yfir fram á sunnudag.

Hátíðin er haldin Hlíðarfjalli og í miðbæ Akureyrar, nánar tiltekið í göngugötunni, Gilinu og Sjallanum.

Hápunktur AK Extreme verður Big Jump/Gámastökks keppni Eimskips í gilinu á laugardagskvöldinu klukkan 21:00 en þar koma saman 20 færustu snjóbrettamenn Íslands og keppa um AK Extreme titilinn og hringinn.

Keppnin verðu í beinni útsendingu á Vísi í samstarfi við sjónvarpsstöðina N4.

Á meðal keppenda annað kvöld eru okkar helstu atvinnumenn í greininni en það eru Halldór Helgason, Eiríkur Helgason, Guðlaugur Hólm Guðmundsson og Einar Stefánsson og frá Austurríki koma þeir David Pils og Max Glatzl.

Einnig er boðið uppá mjög öfluga tónleikadagskrá í Sjallanum fimmtudag, föstudag og laugardag en þar koma fram:  Brain Police, Sólstafir, Highlands, Vök, Úlfur Úlfur, Gísli Pálmi, Kött Grá Pje, Emmsjé Gauti, Últra Mega Techno Bandið Stefán, Endless Dark, Logi Pedro, DJ Thor, Larry Brd og Mafama.

„Þetta hefur allt saman farið ótrúlega vel af stað,“ segor Sigurður Árni Jósefsson, einn af skipuleggjendum hátíðarinnar.

„Veðrið hefur leikið við okkur síðustu daga og ekki er von á öðru um helgina. Þetta er hátíð fyrir alla og fólk getur fundið eitthvað skemmtilegt við sitt hæfi hér í miðbænum. Við höfum verið að taka eftir því að hér eru heilu fjölskyldurnar og fólk á öllum aldri.“


Tengdar fréttir

Halldór og Eiríkur taka þátt á AK Extreme

Nokkrir af okkar bestu snjóbrettaköppum taka þátt á Snjóbretta- og Tónlistarhátíðinni AK Extreme sem haldin verður dagana 3.–6. apríl á Akureyri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×