„Fyrirtækið hefur lagt samfélaginu til veruleg verðmæti" Stefán Árni Pálsson skrifar 8. apríl 2014 11:35 visir/daníel
Útgerðarfyrirtækið Vísir hf. hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar um meintar ívilnanir til fyrirtækisins. Fjallað var um málið á Vísi í gær en þar kom fram að Vísir hf. hafi hlotið um 1.300 tonn í byggðakvóta frá Þingeyri frá árinu 2000 til dagsins í dag. Tonnin 1.300 jafngilda um 11-17 milljónum króna á ári ef miðað er við leiguverð á þorsktonni árið 2000. Samanlagt yfir 14 ára tímabil eru þetta 130-190 milljónir í rekstrarlegan styrk frá Ísafjarðarbæ. Fram kemur í yfirlýsingunni að fyrirtækið vilji árétta að það rúmlega tuttugufaldaði þann kvóta sem úthlutað var til byggðarlagsins og útgerðinni var falið að afla á árunum 2000 til dagsins í dag. „Þetta sýnir, svo ekki verður um villst, að á síðustu þrettán árum hefur fyrirtækið lagt samfélaginu til veruleg verðmæti þar sem hlutur byggðakvótans var hverfandi. Eins og nafnið gefur til kynna er byggðakvóta úthlutað til eins árs í senn til byggðarlaga sem síðan skipta þeim kvóta niður á fiskiskip. Útgerðir þeirra skuldbinda sig á móti til þess að leggja fram annað eins af eigin kvóta og landa sem nemur tvöföldum byggðakvóta í viðkomandi byggðarlagi.“ Fram kom í fjölmiðlum í gær að fyrirtækið hefði aflað 1.300 tonnum af úthlutuðum kvóta til byggðarlagsins á 13 árum, eða 100 tonnum að jafnaði á ári. „Á sama tíma lagði fyrirtækið til um 30.000 tonnum af fiski sem unnin voru í frystihúsi fyrirtækisins á Þingeyri,“ segir í yfirlýsingunni.
Mest lesið Há laun og dýr bjór séu vandamál ÁTVR Viðskipti innlent „Svo hefst kapphlaupið í það hver er fyrstur að ná sturtunni!“ Atvinnulíf Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Viðskipti innlent Fyrsta flugi Icelandair til Pittsburgh fagnað Viðskipti Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Viðskipti innlent Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Viðskipti innlent Base parking gjaldþrota Viðskipti innlent Fleiri fréttir Há laun og dýr bjór séu vandamál ÁTVR Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Sjá meira