Nýherji selur starfsemi Applicon í Danmörku Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 25. mars 2014 12:46 Höfuðstöðvar Nýherja í Borgartúni.
Nýherji hf. hefur selt starfsemi félaganna Applicon A/S og Applicon Solutions A/S í Danmörku. Kaupandinn er Ciber A/S í Danmörku, sem er hluti af Ciber Inc. og er samstæða fyrirtækja á sviði upplýsingatækni (NYSE: CBR). Söluverðið er trúnaðarmál samkvæmt tilkynningu frá Nýherja. Salan mun hafa óveruleg áhrif á niðurstöðu rekstrarreiknings Nýherja hf. fyrir fyrsta ársfjórðung 2014 en mun treysta lausafjárstöðu félagsins og skerpa áherslur í starfsemi í þess. Ciber í Danmörku mun taka yfir rekstur Applicon frá og með 1. apríl nk. Applicon félögin í Danmörku eru sérhæfð í sölu og ráðgjöf sem tengist SAP viðskiptahugbúnaði og þróun tengdra hugbúnaðarlausna. Tæplega 40 manns starfa hjá félögunum. „Salan á Applicon félögunum í Danmörku eru tímamót fyrir Nýherjasamstæðuna. Við höfum nú dregið okkur út úr öllum rekstri í Danmörku, en hann hefur ekki gengið sem skyldi síðustu ár. Ein meginskýringin er sú að lítil sem engin samlegðaráhrif voru á milli dönsku félaganna annars vegar og félaga Nýherja á Íslandi og í Svíþjóð hins vegar,“ segir Finnur Oddsson forstjóri Nýherja í tilkynningunni. Hann segir þau afar ánægð með kaup Ciber á starfsemi Applicon félaganna og telja að í þeim felist margþættur ávinningur. „Þjónustu- og lausnaframboð Applicon fellur vel að starfsemi Ciber og verður sameinað félag enn betur í stakk búið til að sinna þörfum kröfuharðra viðskiptavina. Við sjáum einnig tækifæri til samstarfs milli Ciber og fyrirtækja Nýherja þegar fram líða stundir. Nú liggur fyrir að við getum enn betur einbeitt okkur að rekstri Nýherja og TM Software á Íslandi og árangursríku samstarfi Applicon félaganna á Íslandi og í Svíþjóð. Við væntum þess að það muni efla enn frekar þjónustu til viðskiptavina okkar og bæta afkomu samstæðunnar.“
Mest lesið „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira