Viðskipti innlent

Nýherji selur starfsemi Applicon í Danmörku

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Höfuðstöðvar Nýherja í Borgartúni.
Höfuðstöðvar Nýherja í Borgartúni.
Nýherji hf. hefur selt starfsemi félaganna Applicon A/S og Applicon Solutions A/S í Danmörku. Kaupandinn er Ciber A/S í Danmörku, sem er hluti af Ciber Inc. og er samstæða fyrirtækja á sviði upplýsingatækni (NYSE: CBR). Söluverðið er trúnaðarmál samkvæmt tilkynningu frá Nýherja.

Salan mun hafa óveruleg áhrif á niðurstöðu rekstrarreiknings Nýherja hf. fyrir fyrsta ársfjórðung 2014 en mun treysta lausafjárstöðu félagsins og skerpa áherslur í starfsemi í þess.

Ciber í Danmörku mun taka yfir rekstur Applicon frá og með 1. apríl nk. Applicon félögin í Danmörku eru sérhæfð í sölu og ráðgjöf sem tengist SAP viðskiptahugbúnaði og þróun tengdra hugbúnaðarlausna. Tæplega 40 manns starfa hjá félögunum.

„Salan á Applicon félögunum í Danmörku eru tímamót fyrir Nýherjasamstæðuna. Við höfum nú dregið okkur út úr öllum rekstri í Danmörku, en hann hefur ekki gengið sem skyldi síðustu ár. Ein meginskýringin er sú að lítil sem engin samlegðaráhrif voru á milli dönsku félaganna annars vegar og félaga Nýherja á Íslandi og í Svíþjóð hins vegar,“ segir Finnur Oddsson forstjóri Nýherja í tilkynningunni.

Hann segir þau afar ánægð með kaup Ciber á starfsemi Applicon félaganna og telja að í þeim felist margþættur ávinningur.

„Þjónustu- og lausnaframboð Applicon fellur vel að starfsemi Ciber og verður sameinað félag enn betur í stakk búið til að sinna þörfum kröfuharðra viðskiptavina. Við sjáum einnig tækifæri til samstarfs milli Ciber og fyrirtækja Nýherja þegar fram líða stundir. Nú liggur fyrir að við getum enn betur einbeitt okkur að rekstri Nýherja og TM Software á Íslandi og árangursríku samstarfi Applicon félaganna á Íslandi og í Svíþjóð. Við væntum þess að það muni efla enn frekar þjónustu til viðskiptavina okkar og bæta afkomu samstæðunnar.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×