Lesendur Kvennablaðsins ósáttir við pistla um femínisma 28. mars 2014 15:44 Eva Hauksdóttir. vísir/aðsend
Ritstjórn Kvennablaðsins hafa borist kvartanir vegna skrifa Evu Hauksdóttur á dögunum um hvernig hægt sé að uppræta femínisma. „Sjálf hef ég ekki fengið skilaboð frá þeim sem eru að þrýsta á ritstjórn Kvennablaðsins um að úthýsa mér en hef hinsvegar fengið fjölda skilaboða frá fólki sem telur fulla þörf á gagnrýni á þá kvenhyggju sem enn rær að því öllum árum að einoka umræðu um kynjapólitík,“ segir Eva í pistli sínum á Eyjunni. Eva birti pistil um fjórtán einkenni femínisma síðastliðinn miðvikudag í Kvennablaðinu. Pistillinn vakti töluverða athygli og í kjölfarið bárust kvartanir til ritstjórnar blaðsins að því er Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, ritstjóri Kvennablaðsins, staðfestir í samtali við Vísi. „Ekki virðist þó neinn kvartenda treysta sér til þess að hrekja þá greiningu sem ég set fram í pistlinum heldur snýr óánægjan að því að einhver leyfi sér slík helgispjöll að benda á hið augljósa sem svo mörgum tekst þó að líta fram hjá,“ skrifar Eva í pistli sínum. Steinunn Ólína segir við Vísi að mikill akkur sé að hafa Evu sem pistlahöfund í Kvennablaðinu „Eva Haukdóttir er að mínu mati einhver sterkasti penni og samfélagsrýnir landsins og ritstjórn Kvennablaðsins hefur ekki í hyggju að stýra skrifu Evu á síðum Kvennablaðsins.“Uppfært klukkan 20:30: Sagt var að pistlar Evu sem sneru að upprætingu femínisma myndu eingöngu birtast á Eyjunni. Það er ekki rétt. Biðst Vísir velvirðingar á misskilningnum.
Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Innlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Færir Selenskí eldflaugateikningar Erlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Innlent Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Innlent Fleiri fréttir Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Sjá meira