Mikið reiðufé í versluninni Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 11. mars 2014 20:00
Maðurinn sem rændi verslunina Dalsnesti í Hafnarfirði í gær er enn ófundinn og lögreglu hafa ekki borist neinar vísbendingar um hann. Töluvert reiðufé var í kassanum þar sem verslunin tekur ekki við greiðslukortum. Sigurður Lárusson, eigandi verslunarinnar, var ekki á staðnum þegar ránið átti sér stað en sá í öryggismyndavélum að ræninginn, sem er um 180 sm á hæð, var á vappi fyrir utan verslunina nokkru áður en hann lét til skarar skríða. Maðurinn hótaði starfsmanninum sem rétti honum þá peninga sem í kassanum voru og hafði hann þá á brott með sér. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu leikur grunur á að hann hafi einnig farið inn í fleiri hús á svæðinu. Lambúshettan og felgulykillinn fundust skammt frá versluninni en tæknideild lögreglu rannsakaði vettvanginn í gær. Ræningjans er enn leitað og engar nánari upplýsingar hafa borist. Sigurður hefur rekið verslunina í tuttugu og fimm ár en þetta er í fyrsta skipti sem hún er rænd. Verslunarreksturinn er þó sérstakur að því leyti að aðeins er tekið við reiðufé. Sigurður segir að þjófurinn kunni að hafa haft meira upp úr krafsinu vegna þessa en vildi ekki gefa upp nákvæma upphæð. Sigurður hyggst þrátt fyrir ránið ekki breyta starfsháttum sínum og getur ekki hugsað sér að taka á móti greiðslukortum. „Ég hef engan áhuga á að styrkja bankana, ég vil bara styrkja fólkið,“ segir hann.
Tengdar fréttir Myndband af ráninu í Dalsnesti Í myndskeiðinu má sjá ræningjann, sem er um 180 sm á hæð. Hann var klæddur í hettuúlpu, ljósgráar joggingbuxur og dökka Converse-skó. 11. mars 2014 17:40 Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Innlent Fleiri fréttir Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Guðni snýr aftur í sagnfræðina Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Sjá meira
Myndband af ráninu í Dalsnesti Í myndskeiðinu má sjá ræningjann, sem er um 180 sm á hæð. Hann var klæddur í hettuúlpu, ljósgráar joggingbuxur og dökka Converse-skó. 11. mars 2014 17:40