Viðskipti innlent

Hagsmunasamtök heimilanna skora á Seðlabankann

Gissur Sigurðsson skrifar
Hagsmunasamtökin hvetja til þess að Seðlabankinn sé sjálfum sér samkvæmur.
Hagsmunasamtökin hvetja til þess að Seðlabankinn sé sjálfum sér samkvæmur. Vísir/Pjetur
Hagsmunasamtök heimilanna skora á Seðlabanka Íslands að hann greiði málskostnað í dómsmálum sem varða lögmæti verðtryggðra lána, enda sé þar um að ræða mikið hagsmunamál sem varðar grundvallarstarfssemi Seðlabankans.

Skorað sé ða bankann í ljósi þess að hann hafi greitt málskostnað í dómsmáli Seðlabankastjóra gegn bankanum á þeim forsendum að það væri hagsmunamál bankans að fá úr deilunni skorið.

Samtökin vænta þess að Seðlabankinn verði sjálfum sér samkvæmur og bjóðist til að greiða útlagðan málskostnað samtakanna vegna þeirra málaferla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×