Nýstofnuð kvennadeild SVFR ætlar að halda "Rautt og hvítt" kvöld fyrir allar konur sem hafa áhuga á veiði og víst er að öllu verður til tjaldað til að gera kvöldið skemmtilegt.
Í frétt frá félaginu segir:"
Jæja veiðikonur, þá er komið að hittingi hjá okkur í kvennadeildinni föstudagskvöldið 21. mars. Kvöldið verður með partýsniði, rautt & hvítt og dagskrá á léttari nótunum. Viðburðurinn verður í húsakynnum SVFR að Rafstöðvarvegi 14 og opnar húsið kl: 20:00. Frír aðgangur.
Það verður tískusýning á veiðifatnaði frá Veiðiflugum og mun Áslaug Hulda framkvæmdarstjóri Hjallastefnunnar og forseti bæjarsjórnar Garðabæjar vera með létt erindi. Áslaug Helga er mikil veiðikona og bráðskemmtileg. Vinningar þessa kvölds verða ekki af verri endanum.
Meðal vinninga
Illy kaffivél frá Ölgerðinni
Veiðileyfi, 3 stangir í Varmá í einn dag frá SVFR
A.Jensen fluguveiðisett frá Veiðivörum
Kvenmanns veiðivesti frá Árvík
Gisting fyrir tvo og 1 stöng í Þorsteinsvík frá ION Hotel
Snjósleðaferð fyrir tvo með Mountaineers
Fjórhjólaferð fyrir tvo með Safaríferðum
Gjafabréf frá veitingarstaðnum Gandhi
Gjafabréf frá veitingarstaðnum Caruso
Flugur frá Litlu flugunni
Snyrtivörur frá Gloss.is
Vonandi sjá sem flestar konur sér fært að koma og kynnast í góðu tómi. Svo að við getum áætlað fjölda og skipulagt þetta sem best væri frábært að þið látið vita með því að smella á „mæti“ á viðburðinn á Facebook.
Hlökkum til að sjá ykkur!!
Stjórn Kvennadeildar SVFR"

